Áhugaverðir staðirNokkrir af mest áhugaverðu stöðum Íslands
Búri í LeitahrauniEinn stórbrotnasti hraunhellir jarðarTignarlegastar eru ísmyndanirnar síðla vetrar en við bjóðum ferðir í Búra alla daga ársins. Það er einungis fyrir þá sem eru vel á sig komnir að fara yfir íssalinn og upp ísbrekkuna þar innaf. Þá taka við mikil og stýrgrýtt göng, stórbrotið landslag, víða hátt til lofts og vítt til veggja. Raufarhólshellir í LeitahrauniÞriðji stærsti hraunhellir á ÍslandiUm hálftíma akstur er að hellinum frá Reykjavík og hellaferðin sjálf tekur um fjórar klukkustundir. Því er ágætt að áætla ekki minna en fimm klukkustundir í ferðina í heild. Ganga um hellinn er mikið ævintýr og margt forvitnilegt ber fyrir augu. Arnarker í LeitahrauniAðgengilegur en ævintýralegur hraunhellirÞað tekur hátt í klukkustund að aka frá Reykjavík að Arnarkeri. Frá veginum er örstuttur gangur að hellismunnanum sem er gríðarlegt niðurfall. Er með nokkrum ólíkindum að þakið hafi brotnað á þeim stað sem raun ber vitni því hellirinn liggur þar á um 16 metra dýpi í hrauninu.
Leiðarendi í Stóra-BollahrauniKílómetralöng undraveröld neðanjarðarÞað tekur innan við hálftíma að aka að hellinum frá Reykjavík en hellismunninn er örskammt frá veginum. Leiðarendi er um 900 metra langur og hin mesta draumaveröld. Hellirinn gengur til beggja átta út frá niðurfalli og tengjast leiðirnar þannig að hellirinn liggur í hring.. Flóki ofan HafnarfjarðarEinn af lengstu hraunhellum landsinsUm hálftíma akstur er frá Reykjavík að bílastæði í nágrenni hellisins en þaðan er innan við hálftíma gangur að hellinum. Það er mikil og skemmtileg vinna að skoða hvern krók og kima í Flóka enda hellirinn 1096 metrar að lengd og því líklega tíundi lengsti hraunhellir landsins. BrennisteinsfjöllEldstöðvar, hraun og hraunhellar - ósnortin veröldGengið verður norður eftir hraunsléttu Kistufellshrauns. Þegar nálgast brún Lönguhlíðar opnast vítt útsýni til höfuðborgarsvæðisins. Komið er fram á brún ofan Kerlingarskarðs og þar farið niður stórgrýtt og bratt gil. Þar niðri á jafnsléttunni bíða veitingar göngugarpanna og akstur til höfuðborgarinnar. Vörðuhellir á ÞingvöllumHellaferðin sjálf er mikið ævintýri sem seint gleymistVörðuhellir er um 1100 metrar að lengd og lengstur þekktra hella á Þingvöllum. Ferð um hellinn er mikið ævintýri en ekki alltaf auðvelt. Fjölmargt er að sjá og reyna en sumstaðar þarf að leggjast á fjóra fætur til halda áfram för og víða þarf að beygja sig. Þess á milli er hátt til lofts. Gullborgarhellir og Vegghellir í HnappadalHnappadalur er ævintýrveröld fyrir ferðafólkÍ Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða. Surtshellir, Stefánshellir og VíðgelmirÞrír af stærstu hellum ÍslandsHallmundarhraun myndaðist í miklu eldgosi vestan við norðanverðan Langjökul á árunum í kringum 930. Víkingarnir horfðu því á hraunið renna og hellana verða til. Í hrauninu eru fjölmargir stórir hraunhellar, þar á meðal stærstu og þekktustu hraunhellar á Íslandi. Laufbalavatnshellar í SkaftáreldahrauniEitt allra magnaðsta hellasvæði á ÍslandiÁ annað hundrað hraunhellar eru þekktir í hrauninu, bæði stórir og litlir. Í austurálmu hraunsins, norðaustan Laufbalavatns, er eitt allra magnaðsta hellasvæði á Íslandi. Hvergi annars staðar á landinu er vitað um jafnmikið holrými neðanjarðar á jafn litlu svæði.
HveravellirEinstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru ÍslandsHveravellir eru einstök náttúruperla við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands milli Langjökuls og Hofsjökuls. Langjökull er fjórði stærsti jökull jarðar og Hofsjökull sá fimmti stærsti á jörðinni. Þar eru fjölmargir fallegir hverir með himinbláu sjóðheitu hveravatni.
LandmannalaugarNáttúruparadís á hálendinuNokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga. Suðurland og Þórsmörk - 10 klukkustunda dagsferðTveggja til fimm daga ferðir um SuðurlandHengill er fjall austan Reykjavíkur sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir.
Strútslaug norðan Mýrdalsjökuls glacierNáttúruleg baðlaug í stórbrotnu umhverfiÍ þessari ferð, sem í boði er allt árið, er farið hringinn í kringum Mýrdalsjökul. Hann er fjórði stærsti jökull á Íslandi um 580 ferkílómetrar að flatarmáli. Undir ísnum liggur megineldstöðin Katla en þar hafa orðið hið minnsta 23 eldgos á sögulegum tíma. Síðast gaus í Kötlu árið 1918. Landmannalaugar og HeklaMorgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við HekluHekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða á síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl. Ævintýraleg upplifunÞriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvöldsFlestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim! |



Áhugaverðir staðir





