Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Baðlaugaferðir

Baðlaugaferðir

Náttúrulegar baðlaugar á Íslandi

 

Heit Laug

Rjúpnabrekkur og Klambragil upp frá Hveragerði

Náttúruleg baðlaug og hverir allt um kring

Í dölunum upp frá Hveragerði bjóðast óteljandi gönguleiðir um ævintýralegt landslag með ólgandi hveri hvert sem litið er. Þar er heit laug og vatnsmikill heitur lækur og óvíst að til sé öllu yndislegri baðstaður á gerðvallri jarðarkringlunni og þá lúxussundlaugar glæsihótela með taldar.

Landmannalaugar

Landmannalaugar

Náttúruparadís á hálendinu

Nokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga.

Laugin á Hveravöllum

Hveravellir

Einstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru Íslands

Hveravellir eru einstök náttúruperla við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands milli Langjökuls og Hofsjökuls. Langjökull er fjórði stærsti jökull jarðar og Hofsjökull sá fimmti stærsti á jörðinni. Þar eru fjölmargir fallegir hverir með himinbláu sjóðheitu hveravatni.

Gullborgarhellir og Vegghellir í Hnappadal

Hnappadalur er ævintýrveröld fyrir ferðafólk

Í Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða.

Jeppar á Vatnajökli

Vatnajökull / Grímsvötn / Hvannadalshnjúkur

Ævintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul Evrópu

Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar eins og t.d. Grímsvötn. Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi.

Strýtslaug

Strútslaug norðan Mýrdalsjökuls glacier

Náttúruleg baðlaug í stórbrotnu umhverfi

Í þessari ferð, sem í boði er allt árið, er farið hringinn í kringum Mýrdalsjökul. Hann er fjórði stærsti jökull á Íslandi um 580 ferkílómetrar að flatarmáli. Undir ísnum liggur megineldstöðin Katla en þar hafa orðið hið minnsta 23 eldgos á sögulegum tíma. Síðast gaus í Kötlu árið 1918.

Landmannalaugar og Hekla

Landmannalaugar og Hekla

Morgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við Heklu

Hekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða á síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl.

Ljósmyndun

Ljósmyndaferðir

Samspil ljóss og myrkurs fest á filmu

Það getur orðið ástríða að takast á við myndatöku í íslenskri náttúru þar sem samspil ljóss og ljósmyndara með myndavél að vopni getur skapað einstök listaverk. Hvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum?

Helgarferðir á Íslandi

Óvissuferð

Ævintýraleg helgarferð út í buskann...

Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk  – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall.

Langar dimmar nætur

Langar dimmar nætur

Þriggja daga skammdegisferðir þar sem öræfabirtan ræður ríkjum

Þegar dagur er hvað skemmstur á Íslandi gefst tækifæri til ferðalaga þar sem kyrrð og skammdegisbirta öræfanna nýtur sín hvað best. Fáir ferðalangar eru á sveimi á þessum tíma árs og auðveldlega hægt að fá þá tilfinningu að vera einn í heiminum.

Ótrúleg upplifun

Ævintýraleg upplifun

Þriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvölds

Flestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim!