Bjartar sumarnætur norðursinsGengið á nóttunni en sofið á daginn, þriggja nátta ganga
Björt sumarnótt á hálendi er engu lík. Veröldin breytist og tíminn virðist standa í stað. Ganga í íslenskri sumarnótt er upplifun sem getur vísast fengið þig ofan af því að sofa framvegis á nóttunni! Tilhögun ferðar er sú að ekið er frá Reykjavík inn á hálendi klukkan 20:00. Gengið er í 4, 6 eða 8 klukkustundir á hverri nóttu með nesti, allt eftir þoli og óskum þátttakenda en dagarnir annars teknir rólega. Dæmi um tilhögun getur verið að fyrstu nótt er gengið í 3-4 klst. frá miðnætti fram til um klukkan 4 er gengið er til náða. Með góðri hepppni getur tækifæri skapast til að njóta bæði sólarlags og sólarupprásar sömu nótt. Göngumenn hafa lausan tima til léttra gönguferða fram til klukkan 22:00 er lagt er í göngu að næsta áfangastað sem tekur um 7-8 klukkustundir. Sama skipulag er á þriðja degi, laus tími að deginum að vild fram til klukkan 22:00 er síðasti gönguáfangi er tekinn og má búast við 6 klukkustunda göngu. Það má búast við undraverðri kyrrð, fuglakvaki, birtu sem ekki á sinn líka, jafnvel töfranótt ef vættir verða okkur hliðhollar. Gengið er með dagpoka, ávallt gengið heim til skála að nóttu og sofið fram eftir degi. Á síðasta degi er ekið til Reykjavíkur. |



Bjartar Sumarnætur


