Banner

Dagsferðir

Dagsferðir um Ísland

 

Seljalandsfoss

Suðurland og Þórsmörk - 10 klukkustunda dagsferð

Tveggja til fimm daga ferðir um Suðurland

Hengill er fjall austan Reykjavíkur sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir.

Þingvellir

Þingvellir - sögustaður og náttúra á heimsvísu

Hvergi á jörðinni eru ummerki landreks jafn augljós

Þingvellir eiga sér sterkar rætur í hugum Íslendinga sem og í sögu lýðveldisins. Plötuskilin á milli Ameríku og Evrasíu flekanna eru vel greinileg í þjóðgarðinum Þingvöllum og eru greinagóð merki hinar ungu en mögnuðu jarðsögu Íslands.

Bláa   Lónið

Reykjanesskagi

Eldstöðvar, hraun, hraunhellar, sprungur og hverir.

Reykjanesskagi er syðsti og vestasti hluti Íslands og jafnframt sá yngsti. Þar gengur Atlantshafshryggurinn á land og á Reykjanesskaga sjást gríðarleg ummerki eldvirkni: eldstöðvar, hraun, hraunhellar og hverir. Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík er á Reykjanesskaga.

Glymur

Hvalfjörður

Glymur - Hæsti foss Íslands heimsóttur

Hvalfjörður skerst inn í landið skammt norðan við Reykjavík. Fjörðurinn var í þjóðbraut og þar um mikil umferð þar til jarðgöng voru gerð undir fjörðinn, sem stytti mjög leiðina á milli Reykjavíkur og Borgarness. Eftir það hefur kyrrðin ráðið ríkjum í Hvalfirði.

Snæfellsjökull

Snæfellsnes

Undur og dulmögnun við hvert fótmál - kynngimögnuð veröld

Snæfellsnes í heild sinni er mikil undraveröld og óvíða er íslensk náttúra fjölbreyttari og tignarlegri. Extreme Iceland býður jafnt dagsferðir sem lengri ferðir um Snæfellsnes. Þar er hægt að dvelja dögum saman en samt ávallt sjá og reyna eitthvað nýtt á hverjum degi.

Hver

Undur jarðhitans á Reykjanesi

Heitir hverir Reykjaness og Bláa lónið

Dagsferð um Reykjanes þar sem jarðsaga, hraun, eldstöðvar og hverir eru í öndvegi. Frá Reykjavík er haldið til suðurs. Vegurinn liggur yfir hvert hraunið á fætur öðru. Staldrað er við Kleifarvatn sem er áttunda dýpsta stöðuvatn á Íslandi - um hundrað metra djúpt.

Hellaferðir á Íslandi

Tvígígahellir, Geirdal og Kubbur við Bláa lónið

Fallegir hraunhellar í nágrenni Bláa lónsins

Í þessari ferð er gengið um hraunin og hugað að smáatriðum bæði ofanjarðar og neðan. Sagt verður frá uppruna hraunanna, hraunhellanna, eldvirkninnar á svæðinu og tilurð Bláa lónsins. Í þessari hraunagöngu verður komið við í þrem hraunhellum, þeir eru hvorkir mjög stórir né langir.

Búri

Búri í Leitahrauni

Einn stórbrotnasti hraunhellir jarðar

Tignarlegastar eru ísmyndanirnar síðla vetrar en við bjóðum ferðir í Búra alla daga ársins. Það er einungis fyrir þá sem eru vel á sig komnir að fara yfir íssalinn og upp ísbrekkuna þar innaf. Þá taka við mikil og stýrgrýtt göng, stórbrotið landslag, víða hátt til lofts og vítt til veggja.

Raufarhólshellir

Raufarhólshellir í Leitahrauni

Þriðji stærsti hraunhellir á Íslandi

Um hálftíma akstur er að hellinum frá Reykjavík og hellaferðin sjálf tekur um fjórar klukkustundir. Því er ágætt að áætla ekki minna en fimm klukkustundir í ferðina í heild. Ganga um hellinn er mikið ævintýr og margt forvitnilegt ber fyrir augu.

Arnarker

Arnarker í Leitahrauni

Aðgengilegur en ævintýralegur hraunhellir

Það tekur hátt í klukkustund að aka frá Reykjavík að Arnarkeri. Frá veginum er örstuttur gangur að hellismunnanum sem er gríðarlegt niðurfall. Er með nokkrum ólíkindum að þakið hafi brotnað á þeim stað sem raun ber vitni því hellirinn liggur þar á um 16 metra dýpi í hrauninu.

Leiðarendi

Leiðarendi í Stóra-Bollahrauni

Kílómetralöng undraveröld neðanjarðar

Það tekur innan við hálftíma að aka að hellinum frá Reykjavík en hellismunninn er örskammt frá veginum. Leiðarendi er um 900 metra langur og hin mesta draumaveröld. Hellirinn gengur til beggja átta út frá niðurfalli og tengjast leiðirnar þannig að hellirinn liggur í hring..

Flóki

Flóki ofan Hafnarfjarðar

Einn af lengstu hraunhellum landsins

Um hálftíma akstur er frá Reykjavík að bílastæði í nágrenni hellisins en þaðan er innan við hálftíma gangur að hellinum. Það er mikil og skemmtileg vinna að skoða hvern krók og kima í Flóka enda hellirinn 1096 metrar að lengd og því líklega tíundi lengsti hraunhellir landsins.

Spenastofuhellir

Spenastofuhellir, Völundarhúsið og Lautarhellar

Hrauna og hellaganga í nágrenni Reykjavíkur

Akstur að svæðinu tekur um hálftíma. Gönguferðin í heild með því að skoða hellana fjóra tekur um fjórar klukkustundir og hér er því um fimm tíma ferðalag að ræða með akstrinum til og frá Reykjavík. Við bjóðum þessa ævintýraferð alla daga ársins.

Brennisteinsfjöll

Brennisteinsfjöll

Eldstöðvar, hraun og hraunhellar - ósnortin veröld

Gengið verður norður eftir hraunsléttu Kistufellshrauns. Þegar nálgast brún Lönguhlíðar opnast vítt útsýni til höfuðborgarsvæðisins. Komið er fram á brún ofan Kerlingarskarðs og þar farið niður stórgrýtt og bratt gil. Þar niðri á jafnsléttunni bíða veitingar göngugarpanna og akstur til höfuðborgarinnar.

Hellaferðir á Íslandi

Nátthagi, Annar í aðventu og Hallur

Hverir, hellar og sjávarbrim í einni og sömu ferðinni 

Haldið er frá Reykjavík að Kleifarvatni og þaðan að hverunum við Seltún og gengið um hverasvæðið. Þaðan haldið að Austurengjahverum sem eru meðal stærstu hvera á Íslandi og eiga sér vart hliðstæðu á jörðinni. Í Herdísarvík er gengið niður í fjöru og fylgst með öldunni sem skellur óbrotin á ströndinni.

Djúpihellir

Djúpihellir, Langihellir, Tanngarðshellir og Rótarhellir

Undraveröld jafnt ofanjarðar sem neðan

Bláfjöll á Reykjanesskaga eru helsta skíðasvæði Reykvíkinga og þangað er um hálftíma akstur frá höfuðborginni. Svæðið er kjörið til útivistar, göngu- og hellaferða allt árið um kring.

Ferðir í Íslenska hella

Gjábakkahellir á Þingvöllum

Dagsferð um Þingvallaveit með áherslu á jarðfræði og sögu

Hellirinn er opinn í báða enda og því óþarfi að ganga bæði fram og til baka. Heildarlengd hellisins er 364 metrar. Gjábakkahellir hefur margt að bjóða hellaförum. Í hellinum er allajafna töluvert um ísmyndanir, þar eru spenar, storkuborð og ýmsar aðrar hraunmyndanir sem gleðja augað.

Hellaferð á Íslandi

Tvíbotni á Þingvöllum

Einn fallegasti staðurinn í Þingvallasveit

Tvíbotni er mikill hraunhellir á Þingvöllum og liggur djúpt í hrauninu. Hellirinn er um 310 metra langur og hinn glæsilegasti, upprunalegur og lítt hruninn. Í Tvíbotna er mikið um glæsilegar hraunmyndanir. Hellirinn er á hluta með fölsku gólfi, það er á tveim hæðum.

Ísland neðanjarðar

Vörðuhellir á Þingvöllum

Hellaferðin sjálf er mikið ævintýri sem seint gleymist

Vörðuhellir er um 1100 metrar að lengd og lengstur þekktra hella á Þingvöllum. Ferð um hellinn er mikið ævintýri en ekki alltaf auðvelt. Fjölmargt er að sjá og reyna en sumstaðar þarf að leggjast á fjóra fætur til halda áfram för og víða þarf að beygja sig. Þess á milli er hátt til lofts.

Gullborgarhellir

Gullborgarhellir og Vegghellir í Hnappadal

Hnappadalur er ævintýrveröld fyrir ferðafólk

Í Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða.

Hellaleitarferðir

Hellaleitarferðir – leitað að hellum

Hér fær landkönnunarþráin útrás...

Stórir hlutar íslensku hraunanna eru lítt kannaðir af hellasérfræðingum og því víða mögulegt að ganga fram á ófundna hella. Í slíkum ferðum geta þátttakendur sett sig í spor landkönnuða fyrri tíma og gengið um nýja veröld (hinn nýfundna helli) fyrstir jarðarbúa.

Langjökull - Næst stærsti jökull Íslands

Ótrúleg ferð á ofurjeppum um fjórða stærsta jökul heims

Langjökull er næst stærsti jökull Íslands og er hann um 950 ferkílómetrar að stærð og hæsti punktur hans í 1355 metra hæð. Jökullinn er vestan við Hofsjökul á hálendi Íslands. Austanundir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár.

Hálendis Taxi

Rúntur um hálendisparadís Íslands

Langar þig til að kanna víðáttur hálendis Íslands með sína jökulsorfnu dali, beljandi ár, hrikalega tinda, endalausar hraunbreiður og fannhvíta jökla? Extreme Iceland býður þínum hóp að fara með sérútbúnum fjórhjóladrifnum fjallatrukkum upp á hálendi Íslands.

Landmannalaugar og Hekla

Landmannalaugar og Hekla

Morgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við Heklu

Hekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl.

Myndataka

Ljósmyndaferðir

Samspil ljóss og myrkurs fest á filmu

Hvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns?

Hraunrennsli

Eldgosaferðir

Eldgos og rennandi hraun

Á Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku.

Norður   ljós

Norðurljósaferðir

Hin íslenska nótt með norðurljósadýrð

Extreme Iceland býður sérhannaðar norðurljósaferðir fyrir alla sem vilja upplifa hið magnþrugna sjónarspil norðurljósanna yfir hina íslensku vetrarmánuði frá Október og út Apríl.

 
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner