Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Eyjafjallajökull / Mýrdalsjökull / Strútur

Eyjafjallajökull, Mýrdalsjökull og Strútur að vetri

Ótrúleg jöklaferð

 

Adventure Tour eyjafjallajokull Iceland
Strutur mountain iceland
Myrdalsjokull glacier iceland
 
Eyjafjallajökull (1651 m y. s.) er virk megineldstöð, eldkeila, með kvikuhólfi og öskju. Jökullinn sjálfur er um 100 ferkílómetrar. Við stöldrum við Seljalandsfoss en ökum þaðan upp að og upp á Eyjafjallajökul. Þaðan er ævintýralegt útsýni yfir mikinn hluta Suðurlands og til Vestmannaeyja. Við ökum austur eftir jöklinum og yfir Fimmvörðuháls en þar um liggur gönguleiðin milli Þórsmerkur og Skóga.

Austan við Fimmvörðuháls ökum við upp á Mýrdalsjökul. Hann er fjórði stærsti jökull á Íslandi um 580 ferkílómetrar að flatarmáli. Undir ísnum liggur megineldstöðin Katla en þar hafa orðið hið minnsta 23 eldgos á sögulegum tíma. Síðast gaus í Kötlu árið 1918. Við ökum norður eftir jöklinum og niður á Mælifellssand, norður að Mælifelli (800 m y. s.) og þaðan að Strútsskála þar sem við gistum. Strútsskáli var byggður haustið 2002 og er með olíukyndingu, eldunaraðstöðu og vatnssalerni.

Á degi tvö ökum við að Strútslaug sem er stór náttúruleg baðlaug. Hún er við árbakka og er skipt í tvennt með hleðslu. Stærð lauganna er 6 x 6 og 8,5 x 5 metrar. Mesta dýpi er hálfur metri. Í öðrum hlutanum er hitastigið 43 °C en 37 °C í hinum. Um 30 manns geta baðað sig í einu í Strútslaug. Þegar líður á daginn hefst kvöldvaka í skálanum þar sem sagt verður frá svæðinu og farið í leiki.

Á þriðja degi er svo haldið til Reykjavíkur á ný. Ekið er vestur Mælifellssand um Emstrur niður í Fljótshlíð.

Færi og veður ráða miklu um ferðatilhögun og hvort þessi ferð er gerleg. Í góðu færi og góðu veðri er um mikið ævintýri að ræða enda íslenski veturinn oft tignarlegur inn til jökla og fjalla.