Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Hellaleitarferðir

Hellaleitarferðir – leitað að hellum

Hér fær landkönnunarþráin útrás...

 

Lofthellir cave in Iceland
Selgjarhellir caving in Iceland
Hallmundarhraun lava field in Iceland
Cave searching in Iceland
An Icelandic cave explorer

Við hjá Extreme Iceland ehf. skipuleggjum hellaleitarferðir fyrir stærri og smærri hópa. Stórir hlutar íslensku hraunanna eru lítt kannaðir af hellasérfræðingum og því víða mögulegt að ganga fram á ófundna hella. Í slíkum ferðum geta þátttakendur sett sig í spor landkönnuða fyrri tíma og gengið um nýja veröld (hinn nýfundna helli) fyrstir jarðarbúa. Engin loforð eru gefin fyrir því að stórir hellar finnist í hverri ferð en í lengri ferðum þar sem hellaleit er markmiðið eru góðar líkur á að hópurinn finna nýja og áður óþekkta hraunhella ... þess vegna stóra. Við skipuleggjum hellaleitarferðir um flest öll hraunasvæði landsins þar sem fararstjórar eru hellafræðingar með sérþekkingu á hraunrennsli. Í þessum ferðum er oftar en ekki verið að ganga um landsvæði sem eru allajafna mjög lítið heimsótt en þrátt fyrir það leynast ævintýrin við hvert fótmál.

Vikuferð til hellaleitar og ljósmyndunar á hraunbreiðum Íslands er ótrúlegt ævintýri svo ekki sé talað um þá tilfinningu að ganga fyrstur jarðarbúa um eitthvert landsvæði.

Leitið tilboða í ævintýralegar hellaleitaferðir.

 

Kjalhraun í september

Hér er tækifærið ef þig langar að  stíga fyrstur manna fæti á  nýja jörð 

Kjalhraun (847 m y. s.) er mikil dyngja milli Langjökuls og Hofsjökuls. Gígurinn er um 900 metrar í þvermál, hringlaga og flatur í botninn en umhverfis hann eru smátindar, Strýtur, sem er réttnefni. Strýturnar sjást víða að og er sú austasta hæst, allstór þverhnípt fell, en suðvestan við gíginn er uppmjó strýta, há og áberandi. Sést hún langt að og er líklega hin stærsta sinnar tegundar á landinu. Strýtan er að nokkru hol að innan því að í toppi hennar er 5-7 metra djúp gjóta með ístjörn í botni.

Umfang dyngjunnar er 10-12 rúmkílómetrar en flatarmálið er um 180 ferkílómetrar. Dyngjan myndaðist í miklu flæðigosi fyrir um 7800 árum og hefur ugglaust staðið árum saman.

Sex hraunhellar eru þekktir í Kjalhrauni en sumir þeirra þó lítt kannaðir svo sem hellarnir KJA-06 og KJA-04 og sumir ókannaðir eins og KJA-05 enda ekki vitað um nákvæma staðsetningu hans. Sumir af hellum hraunsins eru meðal helstu djásna í hellaflóru Íslands hvað varðar lögun, stærð, skraut og fjölbreytileika.

Extreme Iceland, Hellarannsóknafélag Íslands og Hveravallafélagið standa fyrir hellaleitarferð í Kjalhraun um miðjan september á hverju ári.

Í ár verður ferðin 17.-20. september. Brottför úr Reykjavík er klukkan fjögur (16:00) föstudaginn 17. september, lagt verður upp frá Olísstöðinni við Norðlingabraut(á leiðinni til Hveragerðis). Farið verður saman í rútu. Gist verður í tvær nætur á Hveravöllum. Í boði er svefnpokapláss eða uppábúin rúm. Í boði er einnig kvöldverður fyrir þá sem vilja bæði á föstudagskvöldi og laugardagskvöldi. Taka þarf fram hvort þáttakendur velja svefnpokapláss eða uppábúin rúm og einnig hvort ætlunin sé að kaupa kvöldverð á föstudagskvöldi og/eða laugardagskvöldi.

Á föstudagskvöldinu verður aðferðafræðin við leitina kynnt og hún skipulögð með tilliti til fjölda þátttakenda. Góðar líkur eru á að nýir hellar finnist og að þáttakendur stigi fæti á landsvæði sem enginn hefur komið á áður -- finni landkönnunartilfinninguna, blóðið ólga og spennuna aukast. Hvað skyldi leynast í myrkri nýrra hella í Kjalhrauni?

Á laugardeginum og fram eftir degi á sunnudag verður leitað hella í Kjalhrauni og þeir sem finnast verða kannaðir til enda. Síðla sunnudags verður haldið til Reykjavíkur og komið þangað um klukkan tíu (22:00) um kvöldið.

Fararstjóri er Björn Hróarsson hellafræðingur.

Verð, kr. 24.000,- miðað við gistingu í svefnpokaplássi.

Verð, kr. 30.000,- miðað við gistingu í uppábúnum rúmum.

Kvöldverður kostar kr. 4500,- per máltíð per mann.

Bóka má  ferðina og spyrjast fyrir í síma 565 9320 og netfangið  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it