HveraferðirÓtrúleg jarðhitasvæði á Íslandi
Undur jarðhitans á ReykjanesiHeitir hverir Reykjaness og Bláa lóniðDagsferð um Reykjanes þar sem jarðsaga, hraun, eldstöðvar og hverir eru í öndvegi. Frá Reykjavík er haldið til suðurs. Vegurinn liggur yfir hvert hraunið á fætur öðru. Staldrað er við Kleifarvatn sem er áttunda dýpsta stöðuvatn á Íslandi - um hundrað metra djúpt. Rjúpnabrekkur og Klambragil upp frá HveragerðiNáttúruleg baðlaug og hverir allt um kring.Í dölunum upp frá Hveragerði bjóðast óteljandi gönguleiðir um ævintýralegt landslag með ólgandi hveri hvert sem litið er. Þar er og vatnsmikill heitur lækur og óvíst að til sé öllu yndislegri baðstaður á gerðvallri jarðarkringlunni og þá lúxussundlaugar glæsihótela með taldar.
LandmannalaugarNáttúruparadís á hálendinuNokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga.
HveravellirEinstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru ÍslandsHveravellir eru einstök náttúruperla við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands milli Langjökuls og Hofsjökuls. Langjökull er fjórði stærsti jökull jarðar og Hofsjökull sá fimmti stærsti á jörðinni. Þar eru fjölmargir fallegir hverir með himinbláu sjóðheitu hveravatni.
Eyjafjallajökull / Mýrdalsjökull / StrúturÓtrúleg jöklaferðEyjafjallajökull (1651 m y. s.) er virk megineldstöð, eldkeila, með kvikuhólfi og öskju. Jökullinn sjálfur er um 100 ferkílómetrar. Við stöldrum við Seljalandsfoss en ökum þaðan upp að og upp á Eyjafjallajökul. Þaðan er ævintýralegt útsýni yfir mikinn hluta Suðurlands og til Vestmannaeyja. Vatnajökull / Grímsvötn / HvannadalshnjúkurÆvintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul EvrópuVatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar eins og t.d. Grímsvötn. Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi.
LjósmyndaferðirSamspil ljóss og myrkurs fest á filmuHvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns? EldstöðvagangaFjögurra daga ganga um ReykjanesskagannLandslag á Reykjanesskaga er bæði ungt og ævintýralegt þar sem eldvörp, gígar, hraun, hellar, sprungur, jarðhiti og misgengi spila stórt hlutverk. Hraun frá nútíma þekja mikinn hluta skagans og mörg þeirra eru frá sögulegum tíma en á fyrstu öldum Íslandsbyggðar var mikil eldvirkni á Reykjanesskaga.
ÓvissuferðÆvintýraleg helgarferð út í buskann...Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk ... – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall ...
Langar dimmar næturÞriggja daga skammdegisferðir þar sem öræfabirtan ræður ríkjumÞegar dagur er hvað skemmstur á Íslandi gefst tækifæri til ferðalaga þar sem kyrrð og skammdegisbirta öræfanna nýtur sín hvað best. Fáir ferðalangar eru á sveimi á þessum tíma árs og auðveldlega hægt að fá þá tilfinningu að vera einn í heiminum. Ævintýraleg upplifunÞriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvöldsFlestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim! EldgosaferðirEldgos og rennandi hraunÁ Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku. |



Hveraferðir







