JarðfræðiferðirÝmis fyrirbrigði náttúru séð í ljósi jarðsögunnar
Þingvellir - sögustaður og náttúra á heimsvísuHvergi á jörðinni eru ummerki landreks jafn augljósÞingvellir eiga sér sterkar rætur í hugum Íslendinga sem og í sögu lýðveldisins. Plötuskilin á milli Ameríku og Evrasíu flekanna eru vel greinileg í þjóðgarðinum Þingvöllum og eru greinagóð merki hinar ungu en mögnuðu jarðsögu Íslands.
ReykjanesskagiEldstöðvar, hraun, hraunhellar, sprungur og hverir - allt í einni ferðReykjanesskagi er syðsti og vestasti hluti Íslands og jafnframt sá yngsti. Þar gengur Atlantshafshryggurinn á land og á Reykjanesskaga sjást gríðarleg ummerki eldvirkni: eldstöðvar, hraun, hraunhellar og hverir. Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík er á Reykjanesskaga. HvalfjörðurGlymur - Hæsti foss Íslands heimsótturHvalfjörður skerst inn í landið skammt norðan við Reykjavík. Fjörðurinn var í þjóðbraut og þar um mikil umferð þar til jarðgöng voru gerð undir fjörðinn, sem stytti mjög leiðina á milli Reykjavíkur og Borgarness. Eftir það hefur kyrrðin ráðið ríkjum í Hvalfirði.
SnæfellsnesUndur og dulmögnun við hvert fótmál - kynngimögnuð veröldSnæfellsnes í heild sinni er mikil undraveröld og óvíða er íslensk náttúra fjölbreyttari og tignarlegri. Extreme Iceland býður jafnt dagsferðir sem lengri ferðir um Snæfellsnes. Þar er hægt að dvelja dögum saman en samt ávallt sjá og reyna eitthvað nýtt á hverjum degi. Rjúpnabrekkur og Klambragil upp frá HveragerðiNáttúruleg baðlaug og hverir allt um kringHengilssvæðið er annað öflugasta háhitasvæði jarðarinnar. Háhitasvæði með kvikuþró undir og þúsundir hvera af öllum gerðum og stærðum á yfirborðinu. Í dölunum upp frá Hveragerði bjóðast óteljandi gönguleiðir um ævintýralegt landslag með ólgandi hveri hvert sem litið er. Gullborgarhellir og Vegghellir í HnappadalHnappadalur er ævintýraveröld fyrir ferðafólkÍ Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða. Suðurland og ÞórsmörkTveggja til fimm daga ferðir um SuðurlandHengill er fjall austan Reykjavíkur sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir. Suðurland að JökulsárlóniTveggja til fimm daga ferðir um SuðurlandLón tóku að myndast framan við jökulinn árið 1935. Árið 1975 var lónið orðið um 8 ferkílómetrar en í dag er það um 20 ferkílómetrar og mikil ævintýraveröld. Jökulsárlón er dýpsta stöðuvatn á Íslandi, 284 metra djúpt. Á því fljóta ótölulegur fjöldi ísjaka.
HveravellirEinstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru ÍslandsHveravellir eru einstök náttúruperla. Á Hveravöllum er eitt af fegurri hverasvæðum jarðar með blásandi gufuhverum, bullandi leirhverum og formfögrum hverum með himinbláu sjóðheitu hveravatni. Einstakt er að skoða sig þar um, hvert heldur er vetur eða sumar. Laufbalavatnshellar í SkaftáreldahrauniEitt allra magnaðasta hellasvæði á ÍslandiÞað var 8. júní 1783 að Skaftáreldar hófust og gaus þá suðvesturhluti gossprungunnar. 12. júlí, byltist hraunið fram úr Skaftárgljúfri við Skaftárdal og breiddist þar út. 16. júní, kom ógnarlegur eldgangur fram úr Skaftárgljúfri og gljúfrið var barmafullt af glóandi hrauni. Vatnajökull / Grímsvötn / HvannadalshnjúkurÆvintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul EvrópuVatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar eins og t.d. Grímsvötn. Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi. Hálendishringur - Styttri gerðinNorður Sprengisand og suður KjölHöldum austur frá Reykjavík og setjum stefnuna á Sprengisandsleið milli Mýrdalsjökuls og Vatnajökuls. Extreme Iceland býður þennan ævintýralega hálendishring jafnt sumar sem vetur. Auðvelt er að skipuleggja bæði styttri og lengri hringferð um hálendið og undur þess. Hálendishringur - Lengri gerðinSprengisandur, Askja, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi o.s.frvHöldum frá Reykjavík að Heklu og þaðan í Landmannalaugar og gistum svo í Hálendsimiðstöðinni Hrauneyjum fyrstu nóttina. Höldum norður Sprengisand og Bárðardal, skoðun Goðafoss. Gist er á Akureyri. Leiðin liggursíðan norður Sprengisand. Landmannalaugar og HeklaMorgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við HekluHekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða á síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl. NorðurljósaferðirHin íslenska nótt með norðurljósadýrðExtreme Iceland býður sérhannaðar norðurljósaferðir fyrir alla sem vilja upplifa hið magnþrugna sjónarspil norðurljósanna yfir hina íslensku vetrarmánuði frá Október og út Apríl. Sjónarspil norðurljósanna fjarri allri ljósmengun er stórfenglegt á að líta.
LjósmyndaferðirSamspil ljóss og myrkurs fest á filmuÞað getur orðið ástríða að takast á við myndatöku í íslenskri náttúru þar sem samspil ljóss og ljósmyndara með myndavél að vopni getur skapað einstök listaverk. Hvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum? EldgosaferðirEldgos og rennandi hraunÁ Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku.
ÓvissuferðÆvintýraleg helgarferð út í buskann...Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk ... – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall ... |



Jarðfræðiferðir






