JeppaferðirFrábærar stuttar og langar ferðir fyrir alla
Hálendis TaxiRúntur um hálendisparadís ÍslandsLangar þig til að kanna víðáttur hálendis Íslands með sína jökulsorfnu dali, beljandi ár, hrikalega tinda, endalausar hraunbreiður og fannhvíta jökla? Extreme Iceland býður þínum hóp að fara með sérútbúnum fjórhjóladrifnum fjallatrukkum upp á hálendi Íslands. JöklaveislaFerð á alla helstu jökla landsinsVatnajökull er þriðji stærsti jökull jarðarinnar og langstærsti jökull Evrópu. Hæsti hluti hans er megineldstöðin Öræfajökull, 2110 metra hár. Allur suðurjaðar jökulsins er mikill ævintýraheimur þar sem hver jökullinn á fætur öðrum nær niður á láglendi.
LandmannalaugarNáttúruparadís á hálendinuNokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga.
Suðurland og Þórsmörk - 10 klukkustunda dagsferðTveggja til fimm daga ferðir um SuðurlandHengill er fjall austan Reykjavíkur sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir.
HveravellirEinstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru ÍslandsHveravellir eru einstök náttúruperla við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands milli Langjökuls og Hofsjökuls. Langjökull er fjórði stærsti jökull jarðar og Hofsjökull sá fimmti stærsti á jörðinni. Þar eru fjölmargir fallegir hverir með himinbláu sjóðheitu hveravatni. Laufbalavatnshellar í SkaftáreldahrauniEitt allra magnaðsta hellasvæði á ÍslandiÁ annað hundrað hraunhellar eru þekktir í hrauninu, bæði stórir og litlir. Í austurálmu hraunsins, norðaustan Laufbalavatns, er eitt allra magnaðsta hellasvæði á Íslandi. Hvergi annars staðar á landinu er vitað um jafnmikið holrými neðanjarðar á jafn litlu svæði.
Eyjafjallajökull / Mýrdalsjökull / StrúturÓtrúleg jöklaferðEyjafjallajökull (1651 m y. s.) er virk megineldstöð, eldkeila, með kvikuhólfi og öskju. Jökullinn sjálfur er um 100 ferkílómetrar. Við stöldrum við Seljalandsfoss en ökum þaðan upp að og upp á Eyjafjallajökul. Þaðan er ævintýralegt útsýni yfir mikinn hluta Suðurlands og til Vestmannaeyja. Vatnajökull / Grímsvötn / HvannadalshnjúkurÆvintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul EvrópuVatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar eins og t.d. Grímsvötn. Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi. Hellaleitarferðir – leitað að hellumHér fær landkönnunarþráin útrás...Stórir hlutar íslensku hraunanna eru lítt kannaðir af hellasérfræðingum og því víða mögulegt að ganga fram á ófundna hella. Í slíkum ferðum geta þátttakendur sett sig í spor landkönnuða fyrri tíma og gengið um nýja veröld (hinn nýfundna helli) fyrstir jarðarbúa. Langjökull - Næst stærsti jökull ÍslandsÓtrúleg ferð á ofurjeppum um fjórða stærsta jökul heimsLangjökull er næst stærsti jökull Íslands og er hann um 950 ferkílómetrar að stærð og hæsti punktur hans í 1355 metra hæð. Jökullinn er vestan við Hofsjökul á hálendi Íslands. Austanundir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár.
Strútslaug norðan Mýrdalsjökuls glacierNáttúruleg baðlaug í stórbrotnu umhverfiÍ þessari ferð, sem í boði er allt árið, er farið hringinn í kringum Mýrdalsjökul. Hann er fjórði stærsti jökull á Íslandi um 580 ferkílómetrar að flatarmáli. Undir ísnum liggur megineldstöðin Katla en þar hafa orðið hið minnsta 23 eldgos á sögulegum tíma. Síðast gaus í Kötlu árið 1918. Landmannalaugar og HeklaMorgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við HekluHekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða á síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl. Hálendishringur - Styttri gerðinNorður Sprengisand og suður KjölHöldum austur frá Reykjavík og setjum stefnuna á Sprengisandsleið milli Mýrdalsjökuls og Vatnajökuls. Extreme Iceland býður þennan ævintýralega hálendishring jafnt sumar sem vetur. Auðvelt er að skipuleggja bæði styttri og lengri hringferð um hálendið og undur þess. Hálendishringur - Lengri gerðinSprengisandur, Askja, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi o.s.frvHöldum frá Reykjavík að Heklu og þaðan í Landmannalaugar og gistum svo í Hálendsimiðstöðinni Hrauneyjum fyrstu nóttina. Höldum norður Sprengisand og Bárðardal, skoðun Goðafoss. Gist er á Akureyri. Leiðin liggursíðan norður Sprengisand.
LjósmyndaferðirSamspil ljóss og myrkurs fest á filmuHvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns? ÓvissuferðÆvintýraleg helgarferð út í buskann...Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk ... – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall ...
Langar dimmar næturÞriggja daga skammdegisferðir þar sem öræfabirtan ræður ríkjumÞegar dagur er hvað skemmstur á Íslandi gefst tækifæri til ferðalaga þar sem kyrrð og skammdegisbirta öræfanna nýtur sín hvað best. Fáir ferðalangar eru á sveimi á þessum tíma árs og auðveldlega hægt að fá þá tilfinningu að vera einn í heiminum. Ævintýraleg upplifunÞriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvöldsFlestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim! EldgosaferðirEldgos og rennandi hraunÁ Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku. NorðurljósaferðirHin íslenska nótt með norðurljósadýrðExtreme Iceland býður sérhannaðar norðurljósaferðir fyrir alla sem vilja upplifa hið magnþrugna sjónarspil norðurljósanna yfir hina íslensku vetrarmánuði frá Október og út Apríl. |



Jeppaferðir









