Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Landmannalaugar

Landmannalaugar

Náttúruparadís á hálendinu

 

Brennisteinsalda mountain
Landmannalaugar natural bathing iceland
Landmannalaugar camping facilities
Landmannalaugar snow tracks
Nokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga. Torfajökulssvæðið er mesta ríólítsvæði landsins og næstmesta háhitasvæðið á eftir Grímsvötnum. Súra bergið (ríólítið) og jarðhitinn er innan mikillar öskju sem er sú stærsta sem þekkt er á landinu.

Umhverfi Landmannalauga er ævintýralegt. Litskrúð fjallanna, Barms, Bláhnjúks, Brennisteinsöldu og Suðurnáms, og andstæðan sem birtist í biksvörtum og glansandi ríólít-hraununum, er ótrúleg. Hrauntinnuhraun myndaðist í eldgosi árið 872 en súru hraunin við Landmannalaugar, Námshraunin og Laugahraun, mynduðust í eldgosinu sem varð árið 1480 eða fyrir rétt rúmum 500 árum.

Undan Laugahrauni spretta heitar laugar og kaldar lindir sem sameinast í Laugalæknum. Þar er náttúruleg baðlaug sem vart á sinn líka. Hún er ekki síður yndisleg að vetri en sumri.

Landmannalaugar eru á tungu milli straumvatnanna Jökulgilskvíslar og Námskvíslar. Suður frá Landmannalaugum gengur Jökulgil um þrettán kílómetra suður til Torfajökuls. Ævintýraleg gönguleið er um gilið. Á Bláhnjúk, Brennisteinsöldu, Barm og um Laugahraun má einnig velja stórskemmtilegar gönguleiðir.

Aðstaða fyrir ferðamenn í Landmannalaugum er nokkuð góð. Þar er skáli Ferðafélags Íslands frá árinu 1969. Húsið er á tveimur hæðum; niðri er stór svefnskáli, eldhús, húsvarðarstofa, rúmgóð forstofa og geymsla. Uppi eru þrjú svefnloft og lítið kvistherbergi. Samtals er pláss fyrir 75 manns í kojum og á dýnum. Húsið er upphitað en gas er notað til eldamennsku. Þar eru pottar og pönnur, leirtau og hnífapör. Skálinn í Landmannalaugum er hitaður upp allt árið og tekur sérstaklega vel á móti ferðafóki á köldum vetrardögum. Heit baðlaugin er örskammt frá skálanum. Snyrtiaðstaða í Landmannalaugum er góð en tjaldstæðin erfið og grýtt. Þar gengur oft illa að koma niður tjaldhælum.

Landmannalaugar eru upphafsstaður gönguferða um „Laugaveginn” suður til Þórsmerkur. Er þetta mjög vinsæl gönguleið, um 53 kílómetrar að lengd. Algengt er að fólk taki þrjá til fimm daga í gönguna.

Extreme Iceland býður ferðir að Heklu og í Landmannalaugar allan ársins hring. Dagsferðir, tveggja daga ferðir, helgarferðir og lengri ferðir allt eftir þörfum og vilja hvers og eins. Landmannalaugar og nágrenni er ekki síður ævintýralegt að vetri en sumri. Við bjóðum ævintýraferðir í Landmannalaugar allan veturinn.