NorðurljósaferðirHin íslenska nótt með norðurljósadýrð
Extreme Iceland býður sérhannaðar norðurljósaferðir fyrir alla sem vilja upplifa hið magnþrugna sjónarspil norðurljósanna yfir hina íslensku vetrarmánuði frá Október og út Apríl. Við bjóðum jafnt stuttar kvöldferðir út fyrir bæjarmörkin fjarri allri ljósmengun sem og lengri ferðir upp á hálendi Íslands og allt norður í land, þar sem að bestu skilyrðin fyrir norðurljósaskoðun eru. Hægt er að fara rétt út fyrir bæjarmörkin og virða fyrir sér fallega náttúruna þar á meðan að rökkva tekur og norðurljósin birtast í allri sinni dýrð. Jafnvel er hægt að finna sér litla fallega og upphitaða sveitasundlaug, þar sem að hægt er að liggja og horfa upp í stjörnubjartann himininn og sjá norðurljósin bylgjast yfir himinhvelfinguna. Einnig er hægt að taka sér lengri ferð, jafnvel nokkura daga ferð og halda upp á hálendi Íslands. Fjarri allri tilbúinni birtu er hægt að njóta tunglskinsins, stjörnuþyrpinganna og óendanlegra norðurljósa, hvort sem við stöndum á jökulbungu, háum tindi eða flatmögum í heitri náttúrulegri laug. Þar getum við notið ótrúlegs sjónarspils norðurljósanna þótt myrkrið sé allt um kring. Einnig er hægt að gista í fallegum fjallaskála og sjá birtuna af mánaskini og litadýrð norðurljósanna endurvarpast af ísilögðum fleti hálendisins út um gluggana á ylvolgum skálanum. Að fylgjast með norðurljósunum í faðmi hinnar kyngimögnuðu íslensku náttúru er eins og að vera kominn í ævintýraveröld beint úr sögubókum, svo einstök er sú sjón. Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk Extreme Iceland og fáið frekari upplýsingar um þessa ferð og aðrar slíkar ferðir.
|