Óvissuferð
Ævintýraleg helgarferð út í buskann
Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk ... – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall ...
eða ...
Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, séð af hæð hvar dalalæða smokrar sér inn dali, yfir sléttur, ef til vill heyrt til vellandi hvera, kannski má greina álftakvak eða tófugagg, hvílt í þögn ... læðst berfætt í heita laug, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, haldið í kröftuga göngu, komið til baka í skála að kvöldi, farið í heita laug, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, ekið að fögru stöðuvatni hvar sér til skriðjökuls steypa sér í vatnið, róið yfir á bát, gengið í ósnortinni náttúru, haldið til baka, ekið til borgar ...
eða ...
Keyrt í átt að helli, kröftug ganga, klungrast yfir grjót og ísbrekku, reynt á líkamsþol til hins ýtrasta, furður hellis, ískastalar, dropsteinar, hraunrósir skoðaðar í skini vasaljóss, að lokum fundið hvernig hlýja skellur á andlit þegar komið er út aftur ...
eða ...
Keyrt inn á hálendi, jökull klifinn, gerast víðsýnn, sjá jörð fyrir fótum sér, anda út, anda inn ... halda að náttúrulegri baðlaug, losa um strengi og svita af kroppi, njóta veitinga, halda til borgar ...
eða ...
komdu með óskir fyrir þinn hóp, fáðu upplýsingar hjá okkur og við munum skipuleggja frábæra óvissuferð sem aldrei gleymist ...
|