Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Rjúpnabrekkur

Rjúpnabrekkur og Klambragil upp frá Hveragerði

Náttúruleg baðlaug og hverir allt um kring

 

geothermal area near reykjavik
Camping at the geothermal area
natural pool bathing iceland
Bubbling hot water hot spring iceland
hot spring icelandic geyser
Hot river geothermal water iceland
hot springs iceland
hot spring geyser iceland
Hot water spout iceland
Bathing in the geothermal waters of Iceland

Hengilssvæðið er annað öflugasta háhitasvæði jarðarinnar. Háhitasvæði með kvikuþró undir og þúsundir hvera af öllum gerðum og stærðum á yfirborðinu. Í dölunum upp frá Hveragerði bjóðast óteljandi gönguleiðir um ævintýralegt landslag með ólgandi hveri hvert sem litið er. Þar er og vatnsmikill heitur lækur og óvíst að til sé öllu yndislegri baðstaður á gerðvallri jarðarkringlunni og þá lúxussundlaugar glæsihótela með taldar.

Extreme Iceland býður jafnt dagsgöngu um dalina ofan Hveragerðis sem tveggja daga ferð og þá er gist í tjöldum skammt frá heita læknum. Gengið er upp Reykjadal, þar skoðaðir hverir og farið í bað. Áfram haldið yfir Dalaskarð og gengið niður Grændal en óvíða á jörðinni eru fleiri og fjölbreyttari hverir en í Grændal.

Hringgangan í heild er innan við 10 kílómetrar en tekur þó um 8 klukkustundir enda margt að sjá á leiðinni. Ævintýri er líka að fara hringinn á tveim dögum og gista í tjöldum við heita lækinn.

Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk Extreme Iceland með frekari upplýsingar.