Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Sprengisandur Askja ...

Hálendishringur - lengri gerðin

Sprengisandur, Askja, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi o. s. frv.

 

Map of the route Iceland
Iceland Highlands
Lake Myvatn
Asbyrgi Canyon
Whale watching
Hveravellir Geothermal Area
Gullfoss Waterfall
 

Fyrsti dagur: Höldum frá Reykjavík að Heklu og þaðan í Landmannalaugar og gistum svo í Hálendsimiðstöðinni Hrauneyjum fyrstu nóttina.

Annar dagur: Leiðin liggur norður Sprengisand og síðan um Gæsavatnaleið yfir í Öskju sem við gist verður.

Þriðji dagur: Eftir skoðunarferð að Öskjuvatni er haldið yfir Jökulsá á Fjöllum og í Kverkfjöll og gist þar.

Fjórði dagur: Frá Kverkfjöllum er haldið norður til Mývatnssveitar og gist við Mývatn.

Fimmti dagur: Haldið niður með Jökulsá á Fjöllum að Dettifossi, komið við í Hólmatungum og í Ásbyrgi. Þaðan haldið til Húsavíkur og gist þar.

Sjötti dagur: Hvalaskoðun á Húsavík ef vill, haldið að Goðafossi og þaðan til Akureyrar og gist þar.

Sjöundi dagur: Haldið frá Akureyri, um Skagafjörð og suður Kjalveg milli Hofsjökuls og Langjökuls og gist á Hveravöllum á Kili. Náttúrulega baðlaugin þar nýtt bæði að kvöldi og morgni.

Áttundi dagur: Haldið frá Hveravöllum, suður Kjöl, að Hvítárvatni, Gullfossi í Hvítá, Geysi í Haukadal og um Þingvelli á leiðinni til Reykjavíkur.

Extreme Iceland býður þennan ævintýralega hálendishring jafnt sumar sem vetur. Auðvelt er að skipuleggja bæði styttri og lengri hringferð um hálendið og undur þess.