Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Suðurlandsundirlendi

Suðurland og Þórsmörk - 10 klukkustunda dagsferð

Hverir, fossar, jöklar og jökulsár

 

Horses in South Iceland
Seljalandsfoss waterfall iceland
skogafoss waterfall south iceland
Thorsmork south iceland
Thorsmork south iceland
Thorsmork valley south iceland

Hengill er fjall austan Reykjavíkur, móbergshrúgald sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir sækja afl sitt niður í átt að kvikuhólfi Hengilsins. Norðan hans er Nesjavallavirkjun en sunnan hans Hellisheiðarvirkjun.

Hellisheiðarvirkjun framleiðir rafmagn með jarðvarma (gufu) á sunnanverðu Hengilssvæðinu, rétt við þjóðveg númer eitt. Virkjunin hóf starfsemi árið 2006 en framleiðslan hefur verið að aukast jafnt og þétt síðan og framleiðir virkjunin nú um 300 megavött af raforku. Komið verður við í Hellisheiðarvirkjun.

Í og við þorpið Hveragerði eru fjölmargir hverir, bæði leirhverir, vatnshverir, gufuhverir og goshverir. Við skoðum hveri og gróðurhús en fjölmörg slík eru í Hveragerði.

Við ökum yfir Ölfusá sem er vatnsmesta straumvatn á Íslandi með rennsli um 420 rúmmetra á sekúndu. Brúin yfir ána var byggð árið 1891 en stendur enn fyrir sínu þótt íslenski hesturinn hafi verið eina samgöngutækið á Íslandi á þeim tíma. Við brúna byggðist þéttbýlisstaðurinn Selfoss eftir að brúin var byggð. Selfoss er nú stærsti þéttbýlisstaðurinn á Suðurlandi með um 6500 íbúa.

Selfoss stendur á hrauni sem rann ofan af hálendinu fyrir um 8700 árum. Þjórsárhraunið þekur um 1000 ferkílómetra og umfangið er um 26 rúmkílómetrar. Þjórsárhraunið er þar með eitt stærsta hraun sem runnið hefur á Íslandi frá því jökla síðasta jökulskeiðs ísaldarinnar leysti.

Leiðin liggur yfir Þjórsá sem er lengsta straumvatn á Íslandi, um 230 kílómetrar að lengd og rennslið um 370 rúmmetrar á sekúndu. Margar stórar vatnsaflsvirkjanir eru í Þjórsá.

Seljalandsfoss fellur rúma 60 metra fram af fornum sjávarhömrum. Hægt er að ganga bak við fossinn og er umhverfi hans bæði ævintýralegt og fagurt í senn.

Austan við Seljalandsfoss, undir Eyjafjöllum, er mikill landbúnaður og blómleg býli. Upp af rís Eyjafjallajökull, 1666 metra yfir sjó. Jökullinn er sá sjötti stærsti á Íslandi og undir fjallinu er kvikuþró enda jökullinn megineldstöð sem gosið hefur tvisvar á sögulegum tíma, árið 1612 og 1821-1823.

Úti fyrir eru Vestmannaeyjar, myndaðar við eldsumbrot í sjó. Síðast varð eldgos þar 1973 en árið 1963 myndaðist eyjan Surtsey, útvörður Íslands í suðri.

Á Skógum fellur Skógafoss um 65 metra fram af fornum sjávarhömrum en Skógafoss er einn formfegursti foss á Íslandi. Á Skógum er byggðasafn sem stofnað var árið 1949 og samgöngusafn. Er þar áhugavert um að litast.

Mýrdalsjökull er fjórði stærsti jökull landins. Undir honum er megineldstöðin Katla sem gosið hefur margoft á sögulegum tíma, síðast 12. október 1918. Talið er að gos í Kötlu sé yfirvofandi. Suðvestan úr Mýrdalsjökli gengur Sólheimajökull niður á láglendi og frá honum rennur Jökulsá á Sólheimasandi eða Fúlilækur eins og vatnsfallið er oftast nefnt. Við göngum að og á Sólheimajökul og virðum fyrir okkur ummerki jökulsins.

Á bakaleiðinni komum við í Þórsmörk sem er dalur umkringdur jöklum og megineldstöðvum. Í norðri er Tindfjallajökull, í austri er Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull í suðri. Við ökum yfir nokkur vatnsfjöll á leiðinni inn í Þórsmörk en þar er vel gróið og tignarlegt um að litast.