Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Surtshellir

Surtshellir / Stefánshellir / Víðgelmir í Hallmundarhrauni

Þrír stærstu hraunhellar landsins

 

Surtshellir cave entrance

Remains of human settlement in Surtshellir cave

Stefánshellir cave Iceland

Stefánshellir cave icy floor

Door in Víðgelmir

Víðgelmir cave is both deep and wide

Víðgelmir lava tube cave

Við bjóðum bæði dagsferðir og helgarferðir í þrjá stærstu hraunhella landsins, Surtshelli, Stefánshelli og Víðgelmi í Hallmundarhrauni. Hallmundarhraun myndaðist í miklu eldgosi vestan við norðanverðan Langjökul á árunum í kringum 930. Víkingarnir horfðu því á hraunið renna og hellana verða til. Hraunið þekur um 242 ferkílómetra, er um 10 rúmkílómetrar að umfangi og lengdin er um 52 kílómetrar. Í hrauninu eru fjölmargir stórir hraunhellar, þar á meðal stærstu og þekktustu hraunhellar á Íslandi. Raunar er Surtshellir líklega þekktasti hraunhellir á jörðinni.

Surtshellir er stærsti og nafntogaðasti hellir á Íslandi. Í fornsögunum er víða getið um Surtshelli og sagt frá flokki illvirkja er þar áttu heima og rændu sauðfé sér til matar. Illgerlegt var að ráðast á þá í hellinum sem reyndist gott vígi. Enn má sjá ummerki eftir dvöl útilegumannanna í Surtshelli fyrir um 1000 árum síðum og eru þær fornminjar skoðaðar vel í ferðinni. Heildarlengd Surtshellis er um 1970 metrar. Á þekju hans eru fimm göt, öll stór utan eitt. Meginhluti hellisins er með um níu metra lofthæð. Neðst í hellinum er þó lægra til lofts. Það tekur allan daginn að skoða hvern krók og kima í Surtshelli en ef skoða á aðeins það helsta tekur hellaferðin tvær til þrjár klukkustundir.

Stefánshellir liggur skammt ofan Surtshellis. Aðalopið á Stefánshelli er um 300 metra frá nyrsta opi Surtshellis. Aðeins um 30 metrar skilja hins vegar sjálfa hellana að og því auðvelt að telja þá einn og sama hellinn. Stefánshellir er um 1520 metra langur en með Surtshelli er heildarlengdin um 3500 metrar. Stefánshellir er lítið hruninn og með tiltölulega slétt hraungólf. Hellirinn er því þægilegur yfirferðar. Aðalop hellisins er í niðurfalli og sést ekki langt að. Út frá niðurfallinu liggja nokkrir fleiri gangar en í aðalhellinn. Stefánshellir er margflókinn og víða liggja vegir til allra átta. Ókunnugir eiga þar létt með að villast.

Víðgelmir er neðstur þessa hellaþríeykis í Hallmundarhrauni. Þótt ekki sé langt á milli Surtshellis og Víðgelmis tekur aksturinn þar á milli hátt í hálftíma. Víðgelmir er um 33 kílómetra frá gígnum og um fimm kílómetra frá Surtshelli. Heildarlengd Víðgelmis er um 1585 metrar, mesta hæð 15,8 metar og mesta breidd 16,5 metrar. Rúmtak hellisins er um 150.000 rúmmetrar. Víðgelmir er þannig mestur íslenskra hella í flestum skilningi. Stærð hans og undur öll eiga engan sinn líka hér á landi. Niðurfallið með hellismunnanum er feikilegt gímald, 75 metra langt og um 15 metra breitt. Dýptin er einnig mikil. Þröng göng liggja inn í aðalhellinn en þaðan og inn í botn er hellirinn mjög stór um sig og þar mikið um dýrðir. Víðgelmir er meðal merkustu djásna í náttúru Íslands.

Hraunfossar sem falla undan Hallmundarhrauni eru að sjálfsögðu skoðaðir í leiðinni sem önnur þekkt og lítt þekkt djásn náttúrunnar á þessum slóðum.