Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Vatnajökull grimsvötn

Vatnajökull / Grímsvötn / Hvannadalshnúkur

Ævintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul Evrópu

 

Driving on Vatnajokull icecap
Speeding over the frozen wasteland iceland
Glacial cave iceland
Mountain cabin vatnajokull glacier iceland
Frozen windowpanes glacier hut iceland
Icelandic 4x4 mountain truck
mountain jeeps on glacier iceland
super jeep in river iceland
Heading into the wilderness glacier iceland
Ice cave on Vatnajokull glacier iceland

Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar, svo sem Bárðarbunga, Grímsvötn, Þórðarhyrna, Kverkfjöll og Öræfajökull.

Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi en þar hafa orðið tugir eldgosa frá landnámi. Meginaskjan er um 35 ferkílómetrar. Stöðuvatn er í hluta öskjunnar og á því flýtur allt að 200 metra þykk jökulhella. Jökulís rennur ofan í öskjuna frá nær öllum hliðum. Jarðhiti er víða sjáanlegur, bæði niðri í öskjunni og uppi á Grímsfjalli. Jarðhitinn bræðir stöðugt ísinn og vatnsborðið stöðuvatnsins hækkar og íshellan lyftist. Með nokkurra ára millibili verða svo vatnshlaup úr öskjunni. Vatnið fær framrás í Skeiðará sem fellur undan Skeiðarárjökli.

Öræfajökull rís um 2110 metra yfir sjávarmál og er hæsta fjall á Íslandi. Efsti hluti fjallsins heitir Hvannadalshnúkur. Öræfajökull er virk megineldstöð með öskju. Tvö eldgos hafa orðið í jöklinum á sögulegum tíma, árin 1362 og 1727.

Oft má aka á sérútbúnum jeppabifreiðum um Vatnajökul, ekki síst síðla vetrar eða í febrúar, mars, apríl og maí. Allt veltur þó á veðri og færð. Við bjóðum jeppaferðir um Vatnajökul með gistingu á Grímsfjalli sunnan Grímsvatna. Þar er góður fjallaskáli með gufubaði. Um er að ræða miklar ævintýraferðir sem erfitt er að skipuleggja í smáatriðum fyrirfram. Æskilegt er að ætla þrjá til fjóra daga til ferðinnar. Oft er hægt að halda frá Grímsvötnum á Öræfajökul og þaðan í Kverkfjöll og norður til Mývatns. Útfærslur ferðarinna ráðast af óskum hvers og eins, snjóalögum, veðri og færð.

Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk Extreme Iceland og fáið upplýsingar um þessa ferð.