Deutsch (DE-CH-AT)Icelandic(IS)French (Fr)
Banner

Home Vetrarferðir

Vetrarferðir

Vetrarhópaferðir og vetrarhvataferðir

 

Vatnajökull

Jöklaveisla

Ferð á alla helstu jökla landsins

Vatnajökull er þriðji stærsti jökull jarðarinnar og langstærsti jökull Evrópu. Hæsti hluti hans er megineldstöðin Öræfajökull, 2110 metra hár. Allur suðurjaðar jökulsins er mikill ævintýraheimur þar sem hver jökullinn á fætur öðrum nær niður á láglendi.

Hver

Undur jarðhitans á Reykjanesi

Heitir hverir Reykjaness og Bláa lónið

Dagsferð um Reykjanes þar sem jarðsaga, hraun, eldstöðvar og hverir eru í öndvegi. Frá Reykjavík er haldið til suðurs. Vegurinn liggur yfir hvert hraunið á fætur öðru. Staldrað er við Kleifarvatn sem er áttunda dýpsta stöðuvatn á Íslandi - um hundrað metra djúpt.

Þingvellir

Þingvellir - sögustaður og náttúra á heimsvísu

Hvergi á jörðinni eru ummerki landreks jafn augljós

Þingvellir eiga sér sterkar rætur í hugum Íslendinga sem og í sögu lýðveldisins. Plötuskilin á milli Ameríku og Evrasíu flekanna eru vel greinileg í þjóðgarðinum Þingvöllum og eru greinagóð merki hinar ungu en mögnuðu jarðsögu Íslands.

Bláa Lónið

Reykjanesskagi

Eldstöðvar, hraun, hraunhellar, sprungur og hverir - allt í einni ferð

Reykjanesskagi er syðsti og vestasti hluti Íslands og jafnframt sá yngsti. Þar gengur Atlantshafshryggurinn á land og á Reykjanesskaga sjást gríðarleg ummerki eldvirkni: eldstöðvar, hraun, hraunhellar og hverir. Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík er á Reykjanesskaga.

Glymur

Hvalfjörður

Glymur - Hæsti foss Íslands heimsóttur

Hvalfjörður skerst inn í landið skammt norðan við Reykjavík. Fjörðurinn var í þjóðbraut og þar um mikil umferð þar til jarðgöng voru gerð undir fjörðinn, sem stytti mjög leiðina á milli Reykjavíkur og Borgarness. Eftir það hefur kyrrðin ráðið ríkjum í Hvalfirði.

Snæfellsjökull

Snæfellsnes

Undur og dulmögnun við hvert fótmál - kynngimögnuð veröld

Snæfellsnes í heild sinni er mikil undraveröld og óvíða er íslensk náttúra fjölbreyttari og tignarlegri. Extreme Iceland býður jafnt dagsferðir sem lengri ferðir um Snæfellsnes. Þar er hægt að dvelja dögum saman en samt ávallt sjá og reyna eitthvað nýtt á hverjum degi.

Vegamannahellir

Hellar á Snæfellsnesi

Hraunhellar í þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Vegamannahellir er í Klifhrauni austan jökulsins. Hann er um 400 metra langur. Hellismunninn lætur lítið yfir sér. Inn frá litlu niðurfalli má halda til tveggja átta inn í ævintýraheim hellisins. Skammt innan við hellismunnann er um þriggja metra djúpur kjallari.

Heit Laug

Rjúpnabrekkur og Klambragil upp frá Hveragerði

Náttúruleg baðlaug og hverir allt um kring

Í dölunum upp frá Hveragerði bjóðast óteljandi gönguleiðir um ævintýralegt landslag með ólgandi hveri hvert sem litið er. Þar er og vatnsmikill heitur lækur og óvíst að til sé öllu yndislegri baðstaður á gerðvallri jarðarkringlunni og þá lúxussundlaugar glæsihótela með taldar.

Gullborgarhellir

Gullborgarhellir og Vegghellir í Hnappadal

Hnappadalur er ævintýrveröld fyrir ferðafólk

Í Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða.

Seljalandsfoss

Suðurland og Þórsmörk - 10 klukkustunda dagsferð

Tveggja til fimm daga ferðir um Suðurland

Hengill er fjall austan Reykjavíkur sem hæst nær um 800 metra yfir sjávarmál. Hengillinn er megineldstöð og undir honum stór kvikuþró. Hengilssvæðið er eitt öflugasta jarðhitasvæði á jörðinni. Á yfirborði eru þúsundir hvera og tvær jarðvarmavirkjanir.

Laugin á Hveravöllum

Hveravellir

Einstakt hverasvæði í stórbrotinni náttúru Íslands

Hveravellir eru einstök náttúruperla við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands milli Langjökuls og Hofsjökuls. Langjökull er fjórði stærsti jökull jarðar og Hofsjökull sá fimmti stærsti á jörðinni. Þar eru fjölmargir fallegir hverir með himinbláu sjóðheitu hveravatni.

Iðrafossar

Laufbalavatnshellar í Skaftáreldahrauni

Eitt allra magnaðsta hellasvæði á Íslandi

Á annað hundrað hraunhellar eru þekktir í hrauninu, bæði stórir og litlir. Í austurálmu hraunsins, norðaustan Laufbalavatns, er eitt allra magnaðsta hellasvæði á Íslandi. Hvergi annars staðar á landinu er vitað um jafnmikið holrými neðanjarðar á jafn litlu svæði.

Langjökull

Langjökull - Næst stærsti jökull Íslands

Ótrúleg ferð á ofurjeppum um fjórða stærsta jökul heims

Langjökull er næst stærsti jökull Íslands og er hann um 950 ferkílómetrar að stærð og hæsti punktur hans í 1355 metra hæð. Jökullinn er vestan við Hofsjökul á hálendi Íslands. Austanundir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár.

Vatnajökull

Eyjafjallajökull / Mýrdalsjökull / Strútur

Ótrúleg jöklaferð

Eyjafjallajökull (1651 m y. s.) er virk megineldstöð, eldkeila, með kvikuhólfi og öskju. Jökullinn sjálfur er um 100 ferkílómetrar. Við stöldrum við Seljalandsfoss en ökum þaðan upp að og upp á Eyjafjallajökul. Þaðan er ævintýralegt útsýni yfir mikinn hluta Suðurlands og til Vestmannaeyja.

Landmannalaugar

Landmannalaugar

Náttúruparadís á hálendinu

Nokkru austan við Heklu er hálendisparadísin Landmannalaugar á Fjallabaksleið nyrðri í um 600 metra hæð yfir sjó. Fjöllin allt um kring eru litskrúðug enda að miklu leyti úr súru bergi sem varð til í kvikuhólfi megineldstöðvar sem kennd er við Torfajökul sunnan Landmannalauga.

Jeppar á Vatnajökli

Vatnajökull / Grímsvötn / Hvannadalshnjúkur

Ævintýraleg ferð á ofurjeppum um stærsta jökul Evrópu

Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull jarðar, um 8300 ferkílómetrar. Undir Vatnajökli eru fjölmargar eldstöðvar eins og t.d. Grímsvötn. Grímsvötn eru nálægt miðju jökulsins, þar er öflugasta jarðhitasvæði jarðar og virkasta megineldstöð á Íslandi.

Sprengisandur

Hálendishringur - Styttri gerðin

Norður Sprengisand og suður Kjöl

Höldum austur frá Reykjavík og setjum stefnuna á Sprengisandsleið milli Mýrdalsjökuls og Vatnajökuls. Extreme Iceland býður þennan ævintýralega hálendishring jafnt sumar sem vetur. Auðvelt er að skipuleggja bæði styttri og lengri hringferð um hálendið og undur þess.

Sprengisandur

Hálendishringur - Lengri gerðin

Sprengisandur, Askja, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi o.s.frv

Höldum frá Reykjavík að Heklu og þaðan í Landmannalaugar og gistum svo í Hálendsimiðstöðinni Hrauneyjum fyrstu nóttina. Höldum norður Sprengisand og Bárðardal, skoðun Goðafoss. Gist er á Akureyri. Leiðin liggursíðan norður Sprengisand.

Hálendistaxi

Hálendis Taxi

Rúntur um hálendisparadís Íslands

Langar þig til að kanna víðáttur hálendis Íslands með sína jökulsorfnu dali, beljandi ár, hrikalega tinda, endalausar hraunbreiður og fannhvíta jökla? Extreme Iceland býður þínum hóp að fara með sérútbúnum fjórhjóladrifnum fjallatrukkum upp á hálendi Íslands.

Strútslaug

Strútslaug norðan Mýrdalsjökuls glacier

Náttúruleg baðlaug í stórbrotnu umhverfi

Í þessari ferð, sem í boði er allt árið, er farið hringinn í kringum Mýrdalsjökul. Hann er fjórði stærsti jökull á Íslandi um 580 ferkílómetrar að flatarmáli. Undir ísnum liggur megineldstöðin Katla en þar hafa orðið hið minnsta 23 eldgos á sögulegum tíma. Síðast gaus í Kötlu árið 1918.

Landmannalaugar og Hekla

Landmannalaugar og Hekla

Morgunbað í Landmannalaugum og síðdegisganga við Heklu

Hekla er eitt þekktasta eldfjall Íslands. Hún er ásamt Kötlu og Grímsvötnum ein virkasta eldstöð á Íslandi. Þetta ílanga eldfjall hefur gosið um 20 sinnum á sögulegum tíma eða á síðustu 1000 árum. Fjallið sem er um 1500 metra hátt sést víða að af Suðurlandi og hefur mikið aðdráttarafl.

Myndataka

Ljósmyndaferðir

Samspil ljóss og myrkurs fest á filmu

Hvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns?

Helgarferðir á Íslandi

Óvissuferð

Ævintýraleg helgarferð út í buskann...

Keyrt í dal að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, kannski undir mánaskini, kannski er éljagangur, kannski er fjúk ... – hvað um það þá er læðst berfætt í snjónum í heita laug, hlustað á kvöldkyrrð, grillað, samveru notið. Vaknað að morgni, farið í göngu, ekið á jökul eða fjall ...

Langar dimmar nætur

Langar dimmar nætur

Þriggja daga skammdegisferðir þar sem öræfabirtan ræður ríkjum

Þegar dagur er hvað skemmstur á Íslandi gefst tækifæri til ferðalaga þar sem kyrrð og skammdegisbirta öræfanna nýtur sín hvað best. Fáir ferðalangar eru á sveimi á þessum tíma árs og auðveldlega hægt að fá þá tilfinningu að vera einn í heiminum.

Ótrúleg upplifun

Ævintýraleg upplifun

Þriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvölds

Flestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim!

Hraunrennsli

Eldgosaferðir

Eldgos og rennandi hraun

Á Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku.

Norður ljós

Norðurljósaferðir

Hin íslenska nótt með norðurljósadýrð

Extreme Iceland býður sérhannaðar norðurljósaferðir fyrir alla sem vilja upplifa hið magnþrugna sjónarspil norðurljósanna yfir hina íslensku vetrarmánuði frá Október og út Apríl.