FerðaleiðsögnVið leiðbeinum þér um undur Íslands
Við tökum að okkur leiðsögn á ferðalögum um Ísland hvort heldur sem er fyrir litla hópa eða stóra. Við leiðsegjum þannig þeim gestum sem hafa fyrirfram ákveðin markmið með ferð sinni til Íslands en vantar að vita hvað er hvar og hvar er hægt að útvega hvað. Við höfum til dæmis töluvert starfað með sjónvarpsstöðvum og kvikmyndagerðarfólki þar sem sérþekking okkar kemur að góðum notum. Nýlega sáum við um leiðsögn fyrir japanska sjónvarpsstöð við upptökur á þáttum um náttúrulegar baðlaugar á Íslandi. Þá höfum við starfað með Discovery Channel við að gera þátt um íslenska hraunhella. Við höfum starfað með frranskri sjónvarpsstöð við gerð myndar um náttúru Íslands og við höfum starfað með svissnesku kvikmyndagerðarfólki sem var að gera heimildarmynd um Vatnajökul, þriðja stærsta jökul jarðar. Það er því sama hver tilgangurinn er með Íslands heimsókninni, við tökum að okkur leiðsögn og ráðgjöf um ferðalagið frá upphafi til enda. Getum einnig séð um gistingu og fólksflutninga og hvað annað sem óskað er eftir enda þekkjum við vel til og leggjum okkur fram við að mæta óskum viðkiptavina.
|













