Ævintýraleg upplifunÞriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvölds
Flestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur verið bæði töfrandi fögur og ógnvænleg. Við skipuleggjum ferð þar sem takast þarf á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim! 1. dagur. Ekið er frá Reykjavík til Kerlingarfjalla. Þaðan er gengið með dagpoka að Setrinu og gist um nóttina. Setrið er vel búinn og rúmgóður skáli skammt frá gljúfrum Blautukvíslar við jaðar Hofsjökuls. 2. dagur. Að morgni er vaðið yfir Blautukvísl og gengnar sandeyrar hennar inn að Nautöldulaug. Þar er hægt að fara í heita náttúrulega laug, snætt nesti og hvílst um stund. Síðan er göngu haldið áfram upp á jaðar Blautukvíslarjökuls og yfir hann, farið niður með gljúfri Blautukvíslar, hún vaðin í tveim kvíslum, staldrað við hjá Illafossi og gengið þaðan til skála. Gengið er með dagpoka. 3. dagur. Gengið frá Setrinu til Kerlingarfjalla, farið á milli fjalla um Hveradali og meðal annars gengið um hverasvæði. Gist í Kerlingarfjöllum. 4. dagur. Gengið í Hvítárnes. Gist í skála FÍ. Kvöldvaka með íslenskri sagnahefð, sögur af svæðinu sagðar, meðal annars af Reynistaðabræðrum, sögusagnir um drauga í Hvítárnesi og sagnir af byggð á svæðinu. Einn heppinn (eða óheppinn) hreppir að gista í draugakoju! 5. dagur. Ekið til Reykjavíkur.
|






