Bannière

Langar dimmar nætur

Þriggja daga skammdegisferðir þar sem öræfabirtan ræður ríkjum

 

Setrið

Þegar dagur er hvað skemmstur á Íslandi gefst tækifæri til ferðalaga þar sem kyrrð og skammdegisbirta öræfanna nýtur sín hvað best. Fáir ferðalangar eru á sveimi á þessum tíma árs og auðveldlega hægt að fá þá tilfinningu að vera einn í heiminum.

Frá Reykjavík er haldið inn á hálendi og ef veðurguðir lofa gefst tækifæri til að sjá stórbrotið landslag baðað mánaskini undir leiftrandi stjörnum og jafnvel norðurljósaspil – en hér er að sjálfsögðu engu hægt að lofa! Við hegðum okkur að hætti sólar, ferðumst milli skála meðan birtu nýtur og sökkvum okkur í skammdegisró öræfanna að kvöldi. Fyrir valinu getur verið jökulganga, fjallganga, gönguferð og eða ökuferð að deginum og síðan er haldið til skála þegar húm og myrkur sækir að. Við njótum samveru og kræsinga í fjallaskála þegar dimmir og megum vænta þess að sofa djúpum svefni í öræfakyrrð.