EldgosaferðirEldgos og rennandi hraun
Á Íslandi er meiri eldvirkni en annars staðar á jörðinni. Atlantshafshryggurinn liggur þvert yfir landið auk þess sem Ísland er svokallaður heitur reitur, það er möttulstrókur undir landinu og ber að því kviku. Einn þriðji af öllum föstum gosefnum sem koma upp í eldgosum á jörðinni koma upp á Íslandi. Þótt Ísland sé ekki stórt og eldvirka svæðið á Íslandi enn minna renna um 33% af öllum hraunum jarðar á Íslandi. Að meðaltali verða eldgos á Íslandi fjórða hvert ár. Síðasta eldgos á Íslandi varð í Grímsvötnum í Vatnajökli árið 2004. Næsta eldgos þar á undan varð í Heklu árið 2000. Hekla er mjög virkt eldfjall og gaus til dæmis árin 1947, 1970, 1980, 1990 og 2000. Því er ekki ólíklegt að Hekla gjósi árið 2010. Í það minnsta er Hekla komin á tíma og þar getur gosið hvenær sem er og líklega áður en langt um líður. Nokkrar aðrar eldstöðvar eru komnar á tíma og líklegt er að á næsta áratug verði að minnst kosti fimm eldgos á Íslandi eða eldgos annað hvert ár að meðaltali. Extreme Iceland býður ferðir að eldgosum þegar þau verða undir traustri leiðsögn jarðfræðinga og þaulreyndra fjallamanna. Það skiptir ekki máli hvar gýs eða hvenær við bjóðum ferðir að gosstöðvunum. Velkomið er að bóka sig í þesar ferðir og þá látum við ykkur vita um leið og eldgos verður.
Eldgos á Íslandi á 20. og 21. öld 2010 Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull 2004: Grímsvötn 2000: Hekla 1998: Grímsvötn 1996: Gjálp 1991: Hekla 1984: Krafla 1983: Grímsvötn 1981: Krafla, 2 gos 1981: Hekla 1980: Hekla 1980: Krafla, 3 gos. 1977: Krafla, 2 gos. 1975: Krafla 1973: Neðansjávargos um 5 kílómetra undan ströndinni við Landeyjar. 1973: Heimaey 1970: Hekla 1963-1967: Surtsey 1961: Askja 1947: Hekla 1938: Grímsvötn 1934: Grímsvötn 1933: Grímsvötn 1929: Askja 1927: Askja 1926: Norðaustan Eldeyjar 1924: Askja 1923: Askja 1922: Askja, 2 gos 1922: Grímsvötn 1921: Askja 1918: Katla 1913: Austan Heklu 1910: Þórðarhyrna 1903: Þórðarhyrna 1902: Grímsvötn
|







