Bannière

Ferðaskipulagning

Ferðir af öllum stærðum og gerðum

 

Glacier
Swimming pool
Walking in snow
Horseback Riding on a River

Við veitum ráðgjöf og skipuleggjum ferðir um Ísland fyrir jafnt einstaklinga sem hópa frá upphafi til enda. Við veitum ráðgjöf, skipuleggjum og útvegum þá þjónustu sem óskað er eftir. Þannig sérsníðum við ferðir að þínum óskum.

Óskir þeirra sem sækja Ísland heim eru jafn ólíkar og gestirnir eru margir. Þekking okkar á Íslandi og íslenskri ferðaþjónustu nýtist þar vel til að skipuleggja ferðalög sem henta hverjum og einum, hvort heldur um er að ræða einstaklinga eða hópa. Við látum óskir þínar rætast.

Við erum í mjög góðri samvinnu við fjöldamarga ferðaþjónustuaðila á Íslandi og getum þannig skipulagt ferðalagið þitt frá upphafi til enda. Við búum yfir miklum tækjakosti til farþegaflutninga, hópferðabifreiðar af öllum gerðum og stærðum. Þá höfum við margar mikið breyttar jeppabifreiðar í okkar flota til vetrar- og jöklaferða. Við bjóðum meðal annars gistingu, bílaleigubíla, hópferðabíla, flúðasiglingar, hvalaskoðun, vélsleðaferðir, hestaferðir, hellaferðir og hvað annað sem Ísland og íslensk ferðaþjónuseta í heild sinni hefur að bjóða.

Hvort sem óskað er eftir erfiðri gönguferð með gistingu í fjallakofium eða lúxus-ferð í glæsibílum þar sem gist er á góðum hótelum þá skipuleggjum við þannig ferðir og allt þar á milli.

Einstaklingar eða hópar geta fengið skipulagðar ferðir þar sem valdar eru leiðir og leitast er við að verða við séróskum ferðalanga. Langar þig að skoða sérstaklega hverasvæði, heitar laugar, sprengigíga, eldstöðvar og eldstöðvakerfi svo eitthvað sé nefnt, blöndu af þessu og fleira eða einungis að rölta um landsvæði fjarri mannabyggð þar sem ofurkraftar náttúru hafa skilið eftir sig ummerki?

Þú getur beðið okkur að skipuleggja ferðina þína alveg eins og þú vilt hafa hana.

 

 
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière