Bannière

Jöklaveisla

Jöklaveisla

Ferð á alla helstu jökla landsins

 

Vatnajokull glacier super jeep iceland
Eyjafjallajokull super jeep driving
Vatnajokull glacier driving iceland
Langjokull glacier hiking iceland
super jeep iceland glacier driving

Jöklar eru eitt af séreinkennum Íslands og þekja um 10% af flatarmáli landsins. Tíu stærstu jöklarnir eru:

Vatnajökull
Langjökull
Hofsjökull
Mýrdalsjökull
Drangajökull
Eyjafjallajökull
Tungnafellsjökull
Þórisjökull
Eiríksjökull
Þrándarjökull

 

Extreme Iceland býður ferðir að og á alla þessa jökla.

Vatnajökull er þriðji stærsti jökull jarðarinnar og langstærsti jökull Evrópu. Hæsti hluti hans er megineldstöðin Öræfajökull, 2110 metra hár. Allur suðurjaðar jökulsins er mikill ævintýraheimur þar sem hver jökullinn á fætur öðrum nær niður á láglendi.

Exterme Iceland býður ævintýraferðir á þessar slóðir allt árið um kring, tveggja daga ferðir, þriggja daga, fjögurra daga og lengri ferðir. Jökulganga á broddum getur verið innifalið og þess vegna á nokkrum jöklum og einnig sigling á Jökulsárlóni sem á vart sinn líka á jörðinni.

Á leiðinni austur frá Reykjavík blasir við Eyjafjallajökull (1651 m y.s.) og austan hans er Mýrdalsjökull, fjórði stærsti jökull landins. Sólheimajökull er skriðjökull út frá Mýrdalsjökli og nær niður á láglendi. Við göngum að jöklinum og um hann, þess vegna einn tvo kílómetra upp eftir honum og kynnumst þar ævintýralegu landslagi.

Suðurjaðar Vatnajökuls, stærsta jökuls Evrópu, er þó sá ævintýraheimur sem við ætlum að skoða. Af veginum á Skeiðarársandi sést vel upp til Skeiðarárjökuls sem er mikill skriðjökull sem gengur suður frá Vatnajökli. Í Skaftafelli göngum við að og á Skaftafellsjökul og Svínafellsjökul en hægt er að ganga langt upp eftir þessum jöklum. Einnig er hægt að ganga frá Skaftafelli um Morsárdal að Morsárjökli.

Fjölmargir skriðjöklar Öræfajökuls ná niður á láglendi. Við göngum að Virkisjökli og Falljökli og þess vegna einnig að Stigárjökli og Hólárjökli - allt eftir því hve marga daga menn vilja í ferðina. Við göngum að Kvíárjökli og Fjallsárlóni sem er fyrir framan Fjallsjökul. Þaðan liggur leiðin að Jökulsárlóni þar sem jakar í þúsundatali svamla um. Breiðamerkurjökull er einn af stóru skriðjöklum Vatnajökuls og árið 1903 var jökuljaðarinn aðeins 200 metra frá sjónum. Upp frá því byrjaði jökullinn að hopa og lón tók að myndast framan við hann árið 1935. árið 1975 var lónið orðið 8 ferkílómetrar en í dag er það um 20 ferkílómetrar. Í boði eru siglingar um lónið, innan um jakana. Jökulsárón er dýpsta stöðuvatn á Íslandi, um 284 metra djúpt.

Þeir sem vilja sjá og kynnast fleiri jöklum geta haldið áfram austur eftir suðurjaðri Vatnajökuls og heimsækja Skálafellsjökul, Heinabergsjökul, Hoffellsjökul og Lambatungnajökul. Einnig er hægt að aka upp að og upp á Skálafellsjökul.

Ef skoða á jöklana vel, ganga um og eftir mörgum þeirra þarf allt að viku til þessarar ferðar. En einnig er hægt að skoða þá á hraðferð. Við bjóðum til dæmis 14 tíma dagsferðir (Reykjavík - Jökulsárlón - Reykjavík) alla daga ársins.