Langjökull - Næst stærsti jökull Íslands
|
Ótrúleg ferð á ofurjeppum um fjórða stærsta jökul heims
Langjökull er næst stærsti jökull Íslands og er hann um 950 ferkílómetrar að stærð og hæsti punktur hans í 1355 metra hæð, að meðaltali er jökullinn um 200 metra breiður en fer mest upp í 700 metra breidd. Jökullinn er vestan við H0fsjökul á hálendi Íslands. Austanundir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár. Suðvesturhluti jökulsins er kallaður Geitlandsjökull og á góðum degi er útsýnið af toppnum frábært.
Á sumrin er hægt að fara yfir jökulinn frá fjallaskálanum Jaka og yfir á Skálpanes, en auðvitað líka á veturna en þá er einnig hægt að fara upp frá Skjaldbreið og þaðan upp í Jökulkrók og upp á jökulinn. Þaðan má fara vestur í Húsafell eða austur í Skálpanes og Bláfell og þaðan niður að Geysi. Einnig er hægt að fara norður eftir jöklinum og fara á Hveravelli og gista þar og láta líða úr sér í heitri laug. Einnig er hægt að gista eða njóta mats á jöklinum í jöklakofa sem kallast Kirkjuból.
Langjökull er frábær staður til að upplifa snjó allan sjóndeildarhringinn, alla daga ársins. Langjökull getur líka verið vaðandi í jökulsprungum, þannig að ávallt skal ferðast varlega á jöklinum.
Langjökull er einnig einn besti staður landsins til að sjá norður ljós.
Yfirleitt má aka um Langjökul á sérbreyttum ökutækjum allt árið. Allt fer þó eftir veðri og færð. Skemmtilegt er að ganga á jöklinum og skíðagöngur eru orðnar mjög vinsælar. Við bjóðum upp á mismunandi vélsleða, fjórhjóla og jeppaferðir á Langjökul og geta þær verið í formi dagsferða, helgarferða eða lengri ferða. Hér er í boði ótrúleg ævintýraferð sem erfitt er að skipuleggja í smáatriðum fyrirfram. Útfærslur ferðarinnar ráðast af óskum hvers og eins, snjóalögum, veðri og færð.
Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk Extreme Iceland og fáið upplýsingar um þessa ferð.






