Ljósmyndaferðir Samspil ljóss og myrkurs fest á filmu
Það getur orðið ástríða að takast á við myndatöku í íslenskri náttúru þar sem samspil ljóss og ljósmyndara með myndavél að vopni getur skapað einstök listaverk. Hvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns? Viltu ljósmynda eingöngu fossa, fjöll, jökla ... eða fjölskrúðugt dýralíf sela, hvala, fuglabjörg, eyðibæi, kirkjur, vita, gamlar verstöðvar, bullandi hveri, hraunlandslag, heitar laugar ... norðurljós ...? Við veljum leiðina út frá óskum þátttakenda, veðurspá og öðru. Lengd getur varað frá einum degi og allt eins lengi og óskað er. Við skipuleggjum ferðina, leggjum til bíl og leiðsögumann ef vill, útvegum gististaði og fæði og veitum allt það liðsinni sem óskað er.
|