Bannière

Undur jarðhitans á Reykjanesi

Heitir hverir Reykjaness og Bláa lónið

 

Reykjanes peninsula iceland
Geothermal power at Reykjanes peninsula
The entrance to the Blue Lagoon geothermal spa Iceland
The Blue Lagoon geothermal spa Iceland
 

Dagsferð um Reykjanes þar sem jarðsaga, hraun, eldstöðvar og hverir eru í öndvegi. Frá Reykjavík er haldið til suðurs. Vegurinn liggur yfir hvert hraunið á fætur öðru. Staldrað er við Kleifarvatn sem er áttunda dýpsta stöðuvatn á Íslandi - um hundrað metra djúpt. Ekið er suðurfyrir vatnið og þar gengið um skemmtilegt hverasvæði stutt frá vatninu. Við Seltún er mikið hverasvæði enda þar stutt niður á kviku. Landið er sundursoðið og litríkt. Hverirnir skipta hundruðum, bæði gufuhverir, vatnshverir og leirhverir. Við göngum um svæðið um stund.

Skammt frá Seltúni eru Austurengjahverir en þeir eru með stærri vatnshverum ájörðinni. Við göngum að hverunum sem mynduðust í jarðskjálfta árð 1924. Frá hverunum er einnig mjög gott útsýni yfir nágrennið.

Við ökum ekki langt að næst áningarstöðum, fyrst er það sprengigígurinn Grænavatn og síðan Krísuvíkurkirkja sem er með minnstu guðshúsum í gervallri kristni. Hún var byggð árið 1857 en síðan endurbyggð árið 1964.

Leiðin liggur yfir Ögmundarhraun sem myndaðist í eldgosi árið 1151 og rann þá yfir nokkra bæi. Við göngum um hraunið og veltum fyrir okkur fólkinu sem þurfti að sjá á eftir húsum sínum undir hraunið.

Sjávarþorpið Grindavík tekur vel á móti okkur. Við göngum um höfnina og fylgjumst með mannlífinu. Leiðin áfram liggur um hvert hraunið á fætur öðru allt að Reykjanestánni þar sem Atlantshafshryggurinn gengur á land. Þar stöldrum við um stund. Ökum síðan að hverasvæði þar skammt frá og skoðum þá um stund. Þar eru hundruðir hvera, vatnshverir, gufuhverir, leirhverir og goshverinn Gunnuhver. Þar er auðvelt að geyma sér.

Eftir hveraskoðunina liggur leiðin í Bláa lónið þar sem við njótum allra þeirra undra sem lónið hefur að bjóða í um þrjár klukkustundir. Með heimsókn í Bláa lónið ná gestir að lífga upp á samband sitt við náttúruna, drekka í sig útsýnið og njóta þess að baða sig í hreinu, fersku loftinu á meðan þeir slaka á í heitum jarðsjónum. Það er ekki að undra að lesendur “Conde Nast Traveller” tímaritsins hafi kosið Bláa lónið sem bestu heilsulindina á heimsvísu. Síðastliðin fimm ár hefur Bláa Lónið hlotið umhverfisviðurkenninguna Bláfánann sem er veittur fyrirtækjum sem stuðla að verndun umhverfis á náttúrulegum ströndum og höfnum. Hitastig vatnsins er 37-39°c. Lónið hefur að geyma 6 milljón lítra af jarðsjó, sem endurnýjar sig á 40 stunda fresti. Reglulegar prófanir sýna að algengar bakteríur þrífast ekki í þessu vistkerfi, þannig ekki ekki er þörf á viðbættum hreinsunarefnum svo sem klór. Bláa lónið er eitt af undrum veraldar.

Eftir slökunina í Bláa lóninu höldum við til Reykjavíkur á ný og ljúkum þessum ævintýradegi um undir Reykjaness.

Extreme Iceland býður þessa dagsferð einnig frá Keflavíkurflugvelli ... við náum þá í ykkur á flugvöllinn ... þeger ykkur hentar ... og skilum ykkur þangað sem ykkur hentar ... þegar ykkur hentar.