Hálendishringur - styttri gerðin
Norður Sprengisand og suður Kjöl
Fyrsti dagur: Höldum austur frá Reykjavík og setjum stefnuna á Sprengisandsleið milli Hofsjökuls og Vatnajökuls. Gistum í Nýjadal á Sprengisandsleið.
Dagur tvö: Höldum norður Sprengisand og Bárðardal, skoðun Goðafoss. Gist er á Akureyri.
Dagur þrjú: Haldið frá Akureyri, um Skagafjörð og suður Kjalveg milli Hofsjökuls og Langjökuls og gist á Hveravöllum á Kili. Náttúrulega baðlaugin þar nýtt bæði að kvöldi og morgni.
Dagur fjögur: Haldið frá Hveravöllum, suður Kjöl, að Hvítárvatni, Gullfossi í Hvítá, Geysi í Haukadal og um Þingvelli á leiðinni til Reykjavíkur.
Extreme Iceland býður þennan ævintýralega hálendishring jafnt sumar sem vetur. Auðvelt er að skipuleggja bæði styttri og lengri hringferð um hálendið og undur þess.
|