Bannière

Hálendistaxi

Rúntur um hálendisparadís Íslands

 

Highland Taxi
4x4 truck in the central highlands of Iceland
Thorsmork Iceland
Emstrur

Langar þig til að kanna víðáttur hálendis Íslands með sína jökulsorfnu dali, beljandi ár, hrikalega tinda, endalausar hraunbreiður og fannhvíta jökla?

Extreme Iceland býður þínum hóp að fara með sérútbúnum fjórhjóladrifnum fjallatrukkum upp á hálendi Íslands, hvort sem ferðinni er heitið á einhvern sérstakan áfangastað eða hvort ætlunin er að rúnta bara um og virða fyrir sér undur íslenskrar hálendis náttúru. Stærð hópsins skiptir engu máli, því við höfum ökutæki af öllum stærðum, allt frá 5 manna fjallatrukkum upp í 70 manna langferðabifreiðar, búin til hálendisaksturs jafnt sumar sem vetur.

Extreme Iceland býður upp á lengri sem skemmri ferðir í fylgd reyndra fjallaleiðsögumanna, hvort sem það er upp á hið eiginlega hálendi Íslands eða bara upp á næsta jökul eða fjallshrygg í nágrenni byggðar. Ferðirnar geta verið ákvarðaðar fyrirfram ellegar að við látum ævintýramennskuna bara ráða för, hvort sem um er að ræða vetur eða sumar, nótt sem dag.

Hægt er að taka rúnt jafnt í Reykjavík og nágrenni, sem og hvert sem hugur leitar á íslenskri fold, hvort sem það er upp á Snæfellsjökul, á Vestfjarðakjálkann, í Landmannalaugar, í Þórsmörk, að Jökulsárlóni, á Þingvelli, að Mývatni, upp á Heklu eða bara skutl út á Keflavíkurflugvöll með smá leiðsögn um jarðfræði Reykjanesskagans.

Það er undir hverjum ferðalangi komið hversu langan bíltúr upp á hálendi Íslands hann vill taka, hvert hann vill fara og hvað hann vill skoða, við látum hvorki snjókomu né sólskin aftra för okkar við að keyra um víðáttur íslenskrar hálendisparadísar. Við skutlumst með hvern sem er, hvert sem er.

Hafið samband við starfsfólk Extreme Iceland og fáið frekari upplýsingar um þjónustu okkar og endilega takið myndavélina með ykkur í þessa ferð, því hálendi Íslands býður upp á ógleymanlegar perlur sem ekki eru í alfaravegi.

 

 
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière