HellaferðirÍslenskir hellar eru ótrúleg veröld
Hellaferðir í alla helstu hella landsins í leiðsögn helstu hellasérfræðinga landsins. Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um þá hella sem vert er að skoða.
Tvígígahellir, Geirdal og Kubbur við Bláa lóniðFallegir hraunhellar í nágrenni Bláa lónsinsÍ þessari ferð er gengið um hraunin og hugað að smáatriðum bæði ofanjarðar og neðan. Sagt verður frá uppruna hraunanna, hraunhellanna, eldvirkninnar á svæðinu og tilurð Bláa lónsins. Í þessari hraunagöngu verður komið við í þrem hraunhellum, þeir eru hvorkir mjög stórir né langir. Búri í LeitahrauniEinn stórbrotnasti hraunhellir jarðarTignarlegastar eru ísmyndanirnar síðla vetrar en við bjóðum ferðir í Búra alla daga ársins. Það er einungis fyrir þá sem eru vel á sig komnir að fara yfir íssalinn og upp ísbrekkuna þar innanfrá taka við mikil og stýrgrýtt göng, stórbrotið landslag, víða hátt til lofts og vítt til veggja. Raufarhólshellir í LeitahrauniÞriðji stærsti hraunhellir á ÍslandiUm hálftíma akstur er að hellinum frá Reykjavík og hellaferðin sjálf tekur um fjórar klukkustundir. Því er ágætt að áætla ekki minna en fimm klukkustundir í ferðina í heild. Ganga um hellinn er mikið ævintýri og margt forvitnilegt ber fyrir augu. Arnarker í LeitahrauniAðgengilegur en ævintýralegur hraunhellirÞað tekur hátt í klukkustund að aka frá Reykjavík að Arnarkeri. Frá veginum er örstuttur gangur að hellismunnanum sem er gríðarlegt niðurfall. Er með nokkrum ólíkindum að þakið hafi brotnað á þeim stað sem raun ber vitni því hellirinn liggur þar á um 16 metra dýpi í hrauninu.
Leiðarendi í Stóra-BollahrauniKílómetralöng undraveröld neðanjarðarÞað tekur innan við hálftíma að aka að hellinum frá Reykjavík en hellismunninn er örskammt frá veginum. Leiðarendi er um 900 metra langur og hin mesta draumaveröld. Hellirinn gengur til beggja átta út frá niðurfalli og tengjast leiðirnar þannig að hellirinn liggur í hring.. Flóki ofan HafnarfjarðarEinn af lengstu hraunhellum landsinsUm hálftíma akstur er frá Reykjavík að bílastæði í nágrenni hellisins en þaðan er innan við hálftíma gangur að hellinum. Það er mikil og skemmtileg vinna að skoða hvern krók og kima í Flóka enda hellirinn 1096 metrar að lengd og því líklega tíundi lengsti hraunhellir landsins. Spenastofuhellir, Völundarhúsið og LautarhellarHrauna og hellaganga í nágrenni ReykjavíkurAkstur að svæðinu tekur um hálftíma. Gönguferðin í heild með því að skoða hellana fjóra tekur um fjórar klukkustundir og hér er því um fimm tíma ferðalag að ræða með akstrinum til og frá Reykjavík. Við bjóðum þessa ævintýraferð alla daga ársins. BrennisteinsfjöllEldstöðvar, hraun og hraunhellar - ósnortin veröldGengið verður norður eftir hraunsléttu Kistufellshrauns. Þegar nálgast brún Lönguhlíðar opnast vítt útsýni til höfuðborgarsvæðisins. Komið er fram á brún ofan Kerlingarskarðs og þar farið niður stórgrýtt og bratt gil. Þar niðri á jafnsléttunni bíða veitingar göngugarpanna og akstur til höfuðborgarinnar. Nátthagi, Annar í aðventu og HallurHverir, hellar og sjávarbrim í einni og sömu ferðinniHaldið er frá Reykjavík að Kleifarvatni og þaðan að hverunum við Seltún og gengið um hverasvæðið. Þaðan haldið að Austurengjahverum sem eru meðal stærstu hvera á Íslandi og eiga sér vart hliðstæðu á jörðinni. Í Herdísarvík er gengið niður í fjöru og fylgst með öldunni sem skellur óbrotin á ströndinni. Djúpihellir, Langihellir, Tanngarðshellir og RótarhellirUndraveröld jafnt ofanjarðar sem neðanBláfjöll á Reykjanesskaga eru helsta skíðasvæði Reykvíkinga og þangað er um hálftíma akstur frá höfuðborginni. Svæðið er kjörið til útivistar, göngu- og hellaferða allt árið um kring. Vestan Bláfjalla liggur Strompahraun og í því er fjöldi hraunhella. Gjábakkahellir á ÞingvöllumDagsferð um Þingvallasveit með áherslu á jarðfræði og söguHellirinn er opinn í báða enda og því óþarfi að ganga bæði fram og til baka. Heildarlengd hellisins er 364 metrar. Gjábakkahellir hefur margt að bjóða hellaförum. Í hellinum er allajafna töluvert um ísmyndanir, þar eru spenar, storkuborð og ýmsar aðrar hraunmyndanir sem gleðja augað. Tvíbotni á ÞingvöllumEinn fallegasti staðurinn í ÞingvallasveitTvíbotni er mikill hraunhellir á Þingvöllum og liggur djúpt í hrauninu. Hellirinn er um 310 metra langur og hinn glæsilegasti, upprunalegur og lítt hruninn. Í Tvíbotna er mikið um glæsilegar hraunmyndanir. Hellirinn er að hluta með fölsku gólfi, það er á tveim hæðum. Vörðuhellir á ÞingvöllumHellaferðin sjálf er mikið ævintýri sem seint gleymistVörðuhellir er um 1100 metrar að lengd og lengstur þekktra hella á Þingvöllum. Ferð um hellinn er mikið ævintýri en ekki alltaf auðvelt. Fjölmargt er að sjá og reyna en sumstaðar þarf að leggjast á fjóra fætur til halda áfram för og víða þarf að beygja sig. Þess á milli er hátt til lofts. Gullborgarhellir og Vegghellir í HnappadalHnappadalur er ævintýraveröld fyrir ferðafólkÍ Hnappadal austast á Snæfellsnesi varð mikið eldgos snemma á nútíma og myndaði Gullborg og Gullborgarhraun sem er um 15 ferkílómetrar. Hraunið rann í mörgum og stórum neðanjarðarrásum sem sumar urðu að hellum. Eldvarpið Gullborg er glæsilegur gígur sem gaman er að skoða. Surtshellir, Stefánshellir og VíðgelmirÞrír af stærstu hellum ÍslandsHallmundarhraun myndaðist í miklu eldgosi vestan við norðanverðan Langjökul á árunum í kringum 930. Víkingarnir horfðu því á hraunið renna og hellana verða til. Í hrauninu eru fjölmargir stórir hraunhellar, þar á meðal stærstu og þekktustu hraunhellar á Íslandi. Hellar á SnæfellsnesiHraunhellar í þjóðgarðinum SnæfellsjökliVegamannahellir er í Klifhrauni austan jökulsins. Hann er um 400 metra langur. Hellismunninn lætur lítið yfir sér. Inn frá litlu niðurfalli má halda til tveggja átta inn í ævintýraheim hellisins. Skammt innan við hellismunnann er um þriggja metra djúpur kjallari. Laufbalavatnshellar í SkaftáreldahrauniEitt allra magnaðsta hellasvæði á ÍslandiÁ annað hundrað hraunhellar eru þekktir í hrauninu, bæði stórir og litlir. Í austurálmu hraunsins, norðaustan Laufbalavatns, er eitt allra magnaðsta hellasvæði á Íslandi. Hvergi annars staðar á landinu er vitað um jafnmikið holrými neðanjarðar á jafn litlu svæði. Hellaleitarferðir – leitað að hellumHér fær landkönnunarþráin útrásStórir hlutar íslensku hraunanna eru lítt kannaðir af hellasérfræðingum og því víða mögulegt að ganga fram á ófundna hella. Í slíkum ferðum geta þátttakendur sett sig í spor landkönnuða fyrri tíma og gengið um nýja veröld (hinn nýfundna helli) fyrstir jarðarbúa.
LjósmyndaferðirSamspil ljóss og myrkurs fest á filmuHvað heillar ljósmyndaaugað mest? Sérkennileg litadýrð eins og gefst að sumri í Hveradölum, á Fjallabaksleiðum og í Landmannalaugum, leikur íss og elds í Hrafntinnuskeri, svart umhverfi Kleifarvatns og Suðurstrandar, dulmögnuð veröld Jökulsárlóns? ÓvissuferðÆvintýraleg helgarferð út í buskannHaldið að skála þar sem kyrrð ríkir á fjöllum, séð af hæð hvar dalalæða smokrar sér inn dali, yfir sléttur, ef til vill heyrt til vellandi hvera, kannski má greina álftakvak eða tófugagg, hvílt í þögn, læðst berfætt í heita laug, grillað, samveru notið. Að morgni haldið í kröftuga göngu. Ævintýraleg upplifunÞriggja daga ævintýri, nýjar upplifanir frá morgni til kvöldsFlestum þeim sem ferðast um Kjalveg og þar í grennd verður ofarlega í huga hversu íslensk náttúra getur bæði verið töfrandi fögur og ógnvænleg. Hér er tekist á við náttúruöfl eins og jökulár og jökla og í lokin skyggnumst við inn í íslenskan sagnaheim og horfum inn í draugaheim! |















