Notre site français Íslenska English

Banner

Extreme Iceland

Velkomin á vit ævintýranna

01
04
06
07
08

Extreme Iceland ehf. er ferðaskrifstofa þar sem náttúra Íslands er sett í öndvegi. Við leggjum sérstaka áherslu á virðingu fyrir jafnt náttúrunni sem okkar viðskiptavinum. Við höfum áratuga reynslu af því að fara með ferðafólk um Ísland, ofanjarðar og neðan. Við höfum mikla þekkingu á landinu, myndun þess og mótun og leiðsögumenn okkar eru sérfræðingar í jarðfræði Íslands.

Ferðaskrifstofa

Hellaferðir

Undraveröld undirheimanna

Hellaferðir

Í hellum erum við bestir. Extreme Iceland býður hellaferðir í alla helstu hella landsins í leiðsögn helstu hellasérfræðinga landsins. Þekking okkar á hellum á Íslandi er mjög víðtæk og við bjóðum ferðir í mikinn fjölda hella víðsvegar um landið.
Skoðið úrval og upplýsingar um fjölda hella á síðu okkar um hellaferðir.

Ferðaskrifstofa

Hópferðir

Við flytjum fólk

Hópflutningar
Hafið samband og fáið tilboð í ferð

Fátt er skemmtilegra en að ferðast um Ísland í góðra vina hópi. Við sjáum um  að flytja hópinn þinn, sama hversu stór eða lítill hann er, hvert á land sem er. Bjóðum einnig reynda leiðsögumenn með í för sé þess óskað.

Hveravellir á Kili

Einstök náttúruperla

Hveravellir
Hafið samband og fáið tilboð í ferð

Hveravellir er einstakt hverasvæði við þjóðbraut á miðju vesturhálendi Íslands. Við bjóðum ferðir til Hveravalla allan ársins hring, þar sem unnt er að fá gistingu í uppábúnum rúmum eða í svefnpoka-plássi. Í boði er ferð, gisting og veisluþjónusta allt eftir þörfum og leiðarvali hvers og eins.

 
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner
Banner


top
Extreme Iceland | E-mail us | Phone: +354 565 9320 | Gylfaflöt 20 | IS 112 Reykjavík | Iceland
bottom