Bannière

Búri í Leitahrauni

Einn stórbrotnasti hraunhellir jarðar

 

Hellirinn Búri er í Leitahrauni á Reykjanesskaga. Hraunið og þar með hellirinn mynduðust í miklu dyngjugosi fyrir um 5000 árum. Á sama tíma strituðu þúsundir manna við byggingu hins mikla Keopspýramída í Egypalandi. Þá voru enn óliðin nær 4000 ár þangað til fyrstu mennirnir komu til Íslands. Búri er eitt mesta djásnið meðal íslenskra hraunhella. Björn Hróarsson hellafræðingur fann Búra 7. maí 2005 og var þar um að ræða merkasta hellafund á Íslandi síðustu 1000 árin. Búri er yfir kílómetri að lengd og stór um sig en erfiður yfirferðar. Hvelfingar og hraunmyndanir eiga vart sinn líka. Lofthæðin í mestu hvelfingunum er um 10 metrar og þar yfir 10 metrar milli veggja. Innstu 400 metrarnir af Búra er ævintýraheimur sem á sér vart hliðstæðu á jörðinni. Innst er um 17 metra djúpur hraunsvelgur sem er dýpsti svelgur í hraunhelli á jörðinni. Innsti hluti Búra verður að teljast með fegurstu stöðum á Íslandi.

Ekki er aðvelt að komast að Búra. Eftir 50 mínutna akstur frá Reykjavik tekur við rúmlega klukkustundar ganga að hellinum. Þá tekur við þröngur hellismunni en innan hans er mikil hvelfing sem allajafna er full af ísskúlptúrum af öllum gerðum og stærðum. Tignarlegastar eru ísmyndanirnar síðla vetrar en við bjóðum ferðir í Búra alla daga ársins. Það er einungis fyrir þá sem eru vel á sig komnir að fara yfir íssalinn og upp ísbrekkuna þar innaf. Þá taka við mikil og stýrgrýtt göng, stórbrotið landslag, víða hátt til lofts og vítt til veggja. Eftir að hafa klöngrast um 700 metra inn hellinn tekur við því sem næst slétt hraungólf allt að svelgnum innnst í hellinum. Fá guðshús jarðar slá við þeim undraheimi sem þar leynist í myrkrinu. Eftir að hafa staldrað við innst í hellinum er svo gengið sömu leið til baka.

Frá Reykjavík er ekið í um klukkustund, þá gengið í um klukkustund að hellinum og hellaferðin sjálf tekur síðan um sex klukkustundir. Ferðalagið í heild tekur því um 10 klukkustundir og er einungis fyrir þá sem eru þokkalega vel á sig komnir. Á hinn bóginn er ferð í Búra ævintýri sem seint gleymist.