Bannière

Um Extreme Iceland ferðaskrifstofu

 

employers of extreme iceland
icelandic super jeeps
Kari Bjornsson manager of Extreme Iceland
eyjafjallajokull eruption
 

Extreme Iceland er ferðaskrifstofa þar sem viðskiptavinir okkar og íslensk náttúra eru í öndvegi. Við skipuleggjum ferðalög frá upphafi til enda, útvegum alla þjónustu sama hvað nafni hún nefnist, veitum leiðsögn, sjáum um fólksflutninga og hvað annað er snýr að ferðalögum um Ísland.

 

Stjórnendur og starfsfólk Extreme Iceland leggja mikla áherslu á að bjóða þér drauma ferðina um Ísland.

 

Björn Hróarsson, framkvæmdastjóri Extreme Iceland ehf. er jarðfræðingur, hellafræðingur og höfundur nær þrjátíu bóka um náttúru Íslands. Björn á óteljandi spor að baki um landið jafnt sem ferðamaður, leiðsögumaður og fræðimaður. Rannsóknir Björns tengdar því að afla fróðleiks og ljósmynda í bækur hans á sviði jarðfræði og ferðamennsku hafa leitt hann á margar fáfarnar en stórbrotnar slóðir.  
Björn stofnaði Hellarannsóknafélags Íslands árið 1989 og var fyrsti formaður þess. Þegar Björn hóf að skoða íslenska hraunhella árið 1979 voru innan við 20 slíkir hellar þekktir á landinu. Í bók Björns, Íslenskir hellar, sem út kom árið 2006 lýsir hann 520 hraunhellum í náttúru Íslands. 
 

 

Extreme Iceland 
Gylfaflöt 20 
112 Reykjavik 
Sími: 565 9320 
GSM: 898 5448  
Email: Cette adresse email est protégée contre les robots des spammeurs, vous devez activer Javascript pour la voir.

 

 

JavaScript must be enabled in order for you to use Google Maps.
However, it seems JavaScript is either disabled or not supported by your browser.
To view Google Maps, enable JavaScript by changing your browser options, and then try again.

 
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière
Bannière